Kim mældist með „litla heilavirkni“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. desember 2025 10:55 Kim Kardashian lét kíkja á sig eftir að hún greindist með heilagúlp í haust. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fór nýverið í heilaskönnun í kjölfar þess að hún greindist með heilagúlp í haust. Reyndist Kim vera með „göt“ í heilanum sem læknirinn sagði sýna litla heilavirkni.
Þetta kemur fram í sjötta þætti af sjöundu seríu The Kardashians sem heitir „The Dominican Republic, Part One“ og kom út fimmtudaginn 27. nóvember. Fyrir utan ferðalag fjölskyldunnar til Dóminíska lýðveldisins þá fór Kim með fyrrverandi mági sínum, Scott Disick, til stjörnulæknisins Dr. Daniels Amen. Hann hefur áður skannað heila Kardashian-systranna þegar Khloé Kardashian og Kendall Jenner fóru til hans 2022 og er orðinn frægur sem læknir stjarnanna. Kim greindi frá því í lok október að hún hefði greinst með „lítinn æðagúlp“ í heila sem hefði orsakast af miklu stressi. Hún hefur átt í stormasömu sambandi við fyrrverandi eiginmann sinn, Kanye West og hefur verið í lögfræðinámi. Alzheimer ólíklegt en „göt“ í heilanum Eftir að hafa farið í skannann settist Kim niður með Amen til að fara yfir niðurstöðurnar og sagði hann að hún væri fallegan heila sem gladdi Kim mikið. „Ég er með fallegan heila. Ég hef heyrt það áður,“ sagði Kim í kjölfarið. Kim hefur haft í nógu að snúast. Læknirinn greindi henni síðan frá því að það væru ekki miklar líkur á að hún fengi Alzheimer. Út frá skannanum sagðist hann sjá að hún væri ekki „hræðilega stressuð, kvíðin eða þunglynd“ og að væri greinilega ótrúlega jákvæð. Hins vegar sagðist Amen sjá „göt“ á myndunum úr skannanum sem hann sagði benda til „lítillar virkni“. „Fremri hluti heilans er minna virkur en hann ætti að vera. Eins og ennisblöðin virka núna er erfiðara að hafa stjórn á stressi og það er ekki gott fyrir þig, sérstaklega því þú ert að læra og að undirbúa þig undir prófið,“ sagði Amen. „Það getur ekki verið,“ sagði Kardashian þegar hún heyrði fréttirnar. Amen útskýrði síðan að niðurstöðurnar gætu tengst „krónísku stressi“ sem hún finnur fyrir meðan hún lærir undir prófið fyrir lögmannsréttindi í Kaliforníu-ríki. Sagðist hún mundu finna leiðir til að höndla stressið betur.
Raunveruleikaþættir Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira