Svikarar höfðu fjórar milljónir af Aroni Can Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. október 2025 13:29 Aron Can lenti í miður skemmtilegu atviki í sumar þegar hann lagði fjórar milljónir króna inn á svikareikning. Hlynur Hólm Aron Can Gültekin, tónlistar- og athafnarmaður, varð fyrir barðinu á svikahröppum þegar hann millifærði fjórar milljónir króna á reikning sem hann taldi vera í eigu erlends viðskiptaaðila.
Aron hefur undanfarin misseri lagt fullan fókus á rekstur fyrirtækisins R8IANT, sem selur steinefni og sölt, en í sumar lenti hann í leiðinlegu máli sem hann greindi svo frá í myndbandi á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Sjá einnig: Gefur endurkomu undir fótinn „Ég var scam-aður,“ syngur Aron í byrjun myndbandsins og hlær. „Ég verð bara smá pirraður þegar ég segi þessa sögu því maður er loksins kominn yfir þetta. Ég var rændur um fjórar milljónir í sumar,“ segir hann síðan áður hann hefur frásögnina. Alvöru áfall en getur hlegið yfir því í dag Aron útskýrir að R8IANT hafi verið með sama innpökkunaraðila frá því fyrirtækið hóf starfsemi fyrir tveimur árum. Upphaflegi lager fyrirtækisins seldist upp á innan við þremur vikum þannig hann hafði samband við þá og lagði inn pöntun fyrir stærri skammti. Í framhaldinu fékk Aron sendan reikning og degi síðar barst honum tölvupóstur þar sem fram kom að reikningurinn væri enn ógreiddur. Þar kom fram að fyrirtækið væri að skipta um banka og fylgdu póstinum nýjar bankaupplýsingar. Aron millifærði upphæðina á nýja bankareikninginn. Aron hefur einblínt á rekstur R8iant undanfarin tvö ár.Vísir/Lýður Valberg Nokkrum dögum síðar fékk hann tölvupóst frá raunverulegum pökkunaraðila sem upplýsti honum að enn væri ekki búið að greiða reikninginn. Aron hafði þá samband við bankann sinn hérlendis til að athuga málið og fékk svarið: „Peningurinn er allavega farinn út af kortinu þínu þannig hann hlýtur að vera á leiðinni.“ Aron sendi upplýsingar um færsluna og reikningsnúmerið á pökkunaraðilann sinn og fékk svar um hæl: „Hafðu samstundis samband við bankann.“ Aron var staddur á veitingastað í Mílanó í afmælisferð sambýliskonu sinnar, Ernu Maríu Björnsdóttur, þegar hann uppgötvaði að svindlað hefði verið á honum og rann honum kalt vatn milli skinns og hörunds. „Ég get hlegið að þessu örlítið núna en þetta var hræðilegt móment, alvöru alvöru áfall.“ Hér fyrir neðan má hlusta á hann segja frá svindlinu: View this post on Instagram A post shared by R8IANT (@r8iant)
Netglæpir Tengdar fréttir Ætlar í pásu frá giggum Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin ætlar að taka sér pásu frá því að koma fram á tónleikum og öðrum viðburðum eftir verslunarmannahelgina. Hann hyggst einbeita sér að rekstri fyrirtækis síns. 30. júlí 2025 14:39 „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Ég er sextán ára þegar allt fer algjörlega á flug. Mér leið eins og ég væri tilbúinn því ég var búinn að vera svo lengi að undirbúa þetta,“ segir sjarmatröllið, rapparinn og nú íþróttamaðurinn Aron Can. Það eru liðin níu ár frá því að ungur og efnilegur rappari skaust upp á stjörnuhimininn og líf hans átti eftir að gjörbreytast. 15. júlí 2025 07:01 Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira
Ætlar í pásu frá giggum Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin ætlar að taka sér pásu frá því að koma fram á tónleikum og öðrum viðburðum eftir verslunarmannahelgina. Hann hyggst einbeita sér að rekstri fyrirtækis síns. 30. júlí 2025 14:39
„Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Ég er sextán ára þegar allt fer algjörlega á flug. Mér leið eins og ég væri tilbúinn því ég var búinn að vera svo lengi að undirbúa þetta,“ segir sjarmatröllið, rapparinn og nú íþróttamaðurinn Aron Can. Það eru liðin níu ár frá því að ungur og efnilegur rappari skaust upp á stjörnuhimininn og líf hans átti eftir að gjörbreytast. 15. júlí 2025 07:01