„Auðvitað er ég hrædd um hana“ Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2025 20:32 Sólveig Hauksdóttir, móðir Margrétar Kristínar Blöndal, eða Möggu Stínu. „Auðvitað er mér ekki rótt. Auðvitað er ég hrædd um hana. En ég veit að hún stendur sig vel og ég er stolt af því sem hún hefur gert,“ segir Sólveig Hauksdóttir, móðir Margrétar Kristínar Blöndal, eða Möggu Stínu, sem hefur verið handtekin og flutt til Ísrael. „
Það er ekkert grín að vera í ísraelsku fangelsi.“ Magga Stína, og aðrir skipverjar skipsins Conscience eru komnir í land í Ísrael, eftir að hafa verið handteknir af ísraelskum hermönnum á Miðjarðarhafi í nótt og stóð til að flytja þau í fangelsi þar í landi. Ræðismaður Finna í Ísrael mun heimsækja hana í fangelsið á morgun, fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. Sólveig sagðist í kvöldfréttum Sýnar vonast til þess að fá fréttir af henni í kjölfar þess á morgun. „Ég heyrði í henni seint í gærkvöldi og það var ekki slæmt hljóð í henni. Hún vissi alveg af því sem koma skyldi,“ sagði Sólveig. Hún sagði að skipverjar hefðu áður heyrt í þyrlu á sveimi og þau hafi verið tilbúin fyrir það að ísraelskir hermenn mættu um borð. „Hún var alveg tilbúin. Þau öll voru tilbúin enda hefur þetta verið undirbúið vel af skipverjum. Æfingar á því hvernig þau munu taka á móti þessu og svo framvegis.“ Sólveig segist vona að Magga Stína komi heil heim frá Ísrael. „Ég býst við því og ég er stolt af henni.“ Sólveig sagðist vilja að ríkisstjórn Íslands sliti stjórnmálasambandi við Ísrael, leyfði sér að nota orðið þjóðarmorð um aðgerðir Ísraela á Gasaströndinni og víðar og mótmælti því. Hún vill einnig að ríkisstjórnin hyggi að afdrifum Möggu Stínu og hennar vinum. „Við skulum ekki gleyma því að það voru 92 aðilar með skipinu og markmiðið var það eitt að færa sveltandi fólki mat. Ég get ekki hugsað mér meiri illsku en það að meina sveltandi fólki að fá þann mat sem hugsanlega er hægt að fá. Henda honum frekar í sjóinn og öllum hjálpargögnum, lyfjum og slíku.“ Segir Ísreala hafa brotið lög Irene Khan, sérstakur rannsakandi og skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna hvað varðar mál- og tjáningarfrelsi, birti undir kvöld yfirlýsingu um handtöku skipverjanna. Þar segir að um klárt brot á alþjóðalögum sé að ræða og að Ísraelum beri að tryggja öryggi og mannréttindi skipverjanna. Khan segist hafa áhyggjur af fólkinu og sérstaklega með tilvísan til þess að aðrir sem hafa verið handteknir í sambærilegum aðgerðum segjast hafa verið beittir ofbeldi og vanvirðingu. Það sé Ísraela að tryggja að slíkt viðgangist ekki. Kallar hún eftir því að fólkinu verði strax veittur aðgangur að lögmönnum og utanríkisþjónustu ríkja þeirra. „Þeir sem voru handteknir hafa rétt á málfrelsi og frelsi til að lýsa yfir samstöðu með Palestínumönnum og aðstoða þá. Ísrael ber að virða þann rétt.“
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Mannréttindi Hjálparstarf Tengdar fréttir Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Félagið Ísland-Palestína boðaði til mótmæla við utanríkisráðuneytið klukkan 15. Mótmælendur krefjast þess að íslensk stjórnvöld fordæmi aðgerðir Ísraela á Miðjarðarhafi í nótt, þegar farið var um borð í skipið Conscience og áhöfn þess handtekin. Meðal hinna handteknu er tónlistarkonan Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína. 8. október 2025 14:41 Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Dóttir Möggu Stínu er í áfalli yfir því að ísraelski sjóherinn hafi handtekið móður hennar þrátt fyrir að hún hafi vitað að handtaka væri mögulega yfirvofandi. Þetta sé veruleiki sem hún eigi erfitt með að meðtaka og því biðlar hún til stjórnvalda að fordæma handtökuna og að koma móður hennar heim sem allra fyrst. 8. október 2025 14:03 Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild háskólans á Bifröst og sérfræðingur í hafrétti, segir ákvæði hafréttar og laga um vopnuð átök takast á í umræðu og skilgreiningu á handtöku Margrétar Kristínar Blöndal tónlistarkonu og annarra aðgerðasinna í nótt. Erfitt sé að fullyrða um lögmæti aðgerða Ísraela þegar allar staðreyndir liggi ekki fyrir. Erlendur sérfræðingur á sviði hafréttar fullyrti í sumar að handtaka aðgerðasinna á bátnum Madleen hafi verið ólögmæt. 8. október 2025 13:14 Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar „Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur málið á sínu borði; málefni íslensks ríkisborgara, sem við vitum hver er, sem var handtekinn í aðgerðum ísraelskra stjórnvalda í nótt og auðvitað fylgjumst við náið með þróun mála,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vegna frétta um að Margrét Kristín Blöndal, íslenskur ríkisborgari, hefði verið handtekin af ísraelska sjóhernum í nótt. 8. október 2025 12:09 Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Björk Guðmundsdóttir er meðal þeirra sem lýsa yfir fullum stuðningi við tónlistarkonuna Möggu Stínu sem numin var á brott af ísraelska hernum ásamt öðrum áhafnarmeðlimum bátsins Conscience í nótt. Hún ber samband Palestínu og Ísraels saman við sex hundruð ára sögu Íslands sem nýlendu. Fjölmiðlafólk undrast svívirðingarnar sem Magga Stína verður fyrir á netinu. 8. október 2025 11:48 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Fleiri fréttir Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Sjá meira
Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Félagið Ísland-Palestína boðaði til mótmæla við utanríkisráðuneytið klukkan 15. Mótmælendur krefjast þess að íslensk stjórnvöld fordæmi aðgerðir Ísraela á Miðjarðarhafi í nótt, þegar farið var um borð í skipið Conscience og áhöfn þess handtekin. Meðal hinna handteknu er tónlistarkonan Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína. 8. október 2025 14:41
Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Dóttir Möggu Stínu er í áfalli yfir því að ísraelski sjóherinn hafi handtekið móður hennar þrátt fyrir að hún hafi vitað að handtaka væri mögulega yfirvofandi. Þetta sé veruleiki sem hún eigi erfitt með að meðtaka og því biðlar hún til stjórnvalda að fordæma handtökuna og að koma móður hennar heim sem allra fyrst. 8. október 2025 14:03
Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild háskólans á Bifröst og sérfræðingur í hafrétti, segir ákvæði hafréttar og laga um vopnuð átök takast á í umræðu og skilgreiningu á handtöku Margrétar Kristínar Blöndal tónlistarkonu og annarra aðgerðasinna í nótt. Erfitt sé að fullyrða um lögmæti aðgerða Ísraela þegar allar staðreyndir liggi ekki fyrir. Erlendur sérfræðingur á sviði hafréttar fullyrti í sumar að handtaka aðgerðasinna á bátnum Madleen hafi verið ólögmæt. 8. október 2025 13:14
Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar „Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur málið á sínu borði; málefni íslensks ríkisborgara, sem við vitum hver er, sem var handtekinn í aðgerðum ísraelskra stjórnvalda í nótt og auðvitað fylgjumst við náið með þróun mála,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vegna frétta um að Margrét Kristín Blöndal, íslenskur ríkisborgari, hefði verið handtekin af ísraelska sjóhernum í nótt. 8. október 2025 12:09
Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Björk Guðmundsdóttir er meðal þeirra sem lýsa yfir fullum stuðningi við tónlistarkonuna Möggu Stínu sem numin var á brott af ísraelska hernum ásamt öðrum áhafnarmeðlimum bátsins Conscience í nótt. Hún ber samband Palestínu og Ísraels saman við sex hundruð ára sögu Íslands sem nýlendu. Fjölmiðlafólk undrast svívirðingarnar sem Magga Stína verður fyrir á netinu. 8. október 2025 11:48
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“