„Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. nóvember 2025 16:15 Hrannar er mikill grínari og hefur náð að skapa úr því atvinnu í Stóra eplinu. Hrannar Björnsson uppgötvaði sem táningur að hægt væri að hafa lifibrauð af grín- og sketsagerð. Hann fór því í nám til New York eftir menntaskóla, lærði þar spunaleik og stofnaði sketsahóp með vinkonum sínum. Boltinn fór að rúlla þegar 45 milljónir manna horfðu á eitt myndbanda hans og er hópurinn nú í viðræðum um gerð á sjónvarpsþætti.
Hrannar er ekki sérlega þekkt nafn hérlendis en það er ekki ólíklegt að þeir lesendur Vísis sem eru duglegir á TikTok eða Instagram hafi rekist á myndbönd frá honum. Blaðamaður heyrði hljóðið í Hrannari til að forvitnast út í það hvernig hann endaði í Stóra eplinu og hvað varð til þess að hann fór að gera sketsa á netinu. Fór beint út eftir menntó „Þegar ég var svona fjórtán-fimmtán ára komst ég að því að það væri hægt að vera grínisti og handritshöfundur og vinna sem sketsaleikari. Þó það sé hægt að gera það á Íslandi var ég mjög hrifinn af hugmyndinni um að fara til Bandaríkjanna og reyna fyrir mér,“ segir Hrannar. Hrannar hefur verið í Bandaríkjunum í átta ár. Eftir útskrift úr menntaskóla árið 2017 leitaði hugur Hrannars út fyrir landsteinana og hvöttu margir hann til að fara til Danmerkur eða Berlínar í leikstjórnarnám. Hann freistaðist en endaði á að fara vestur um haf. „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi, fór bara „all in“ og sótti um einhverja tíu til fimmtán skóla í New York og Los Angeles, aðallega í New York og svo valdi ég skólann sem gaf mér stærsta skólastyrkinn,“ segir hann. „Skólar eru dýrir í Bandaríkjunum þannig það er ekkert rosalega gáfulegt að fara án þess að vera með einhvern styrk.“ Hrannar fór fyrst í nám í bókmenntum og handritaskrifum í skólanum Sarah Lawrence College sem er í Yonkers í New York-fylki, rétt norðan við Bronx-hverfi. Samhliða því lærði hann spunaleik í Upright Citizens Brigade. „Planið var allan tíma að fara í spunaleiklistarnámið þar utan skóla. Ég hugsaði að ég gæti farið í háskóla úti og reynt að koma mér af stað í gríninu samhliða því,“ segir hann. Herbergisfélagar að grínhópi Eftir grunnnámið fór Hrannar í meistaranám í ritlist, flutti inn í New York-borg og stofnaði grínhópinn Tiny Idea með tveimur vinkonum sínum úr skólanum. Hrannar er í Tiny Idea með Evu Nemiroff og Ann Nelson. „Við byrjuðum að gera vídjó á TikTok og Instagram í lok árs 2022 og þá byrjuðum við að fá einhverja athygli,“ segir Hrannar um upphafið að sketsagerðinni. Þau bjuggu þrjú saman í íbúð og hófu að gera vikulega sketsa til að sýna að þeim væri alvara. Upp úr því gríni unnuð þau síðan sketsasýningu. „Við erum með klukkutíma „live show“ sem við sýnum reglulega hérna í grínleikhúsum í New York. Við erum hægt og rólega að byggja upp hóp sem veit af okkur og þekkir okkur. Svo erum við að fara að sýna í Los Angeles í janúar,“ segir hann. View this post on Instagram A post shared by Tiny Idea (@tinyideastuff) Fullkomni eiginmaðurinn vakti athygli Eftir að hafa gert reglulega sketsa í tvö ár með Tiny Idea má segja að Hrannar hafi sprungið út á síðasta ári. Það er stutt í grínið hjá Hrannari. „Í fyrra fann ég fyrir kipp, ég byrjaði að pósta myndböndum á mínum eigin aðgangi á TikTok og póstaði myndbandi sem hét „The Perfect Husband“ og það horfðu 45 milljónir á það,“ segir hann. Hann gerði nokkur fleiri myndbönd í þeirri seríu og fór allt á flug í kjölfarið. „Sú sería sprakk eiginlega og það var þá sem ég byrjaði að fá mikil viðbrögð úti á götu og ég fann fyrir því að fólk byrjaði að taka eftir mér og okkur hjá Tiny Idea,“ segir hann. Sjónvarpsþættir í vændum Ekki nóg með að gera sketsa á samfélagsmiðlum heldur er Hrannar farinn að skrifa sjónvarpsþætti fyrir streymisveituna Dropout TV og er grínhópur hans í viðræðum um þætti á stöðinni. „Þetta hét College Humor og ég held að fleiri þekki það merki því það var rosastórt á Youtube,“ segir Hrannar um Dropout. College Humor var mjög vinsæl síða upp úr aldamótum en fór í gegnum eigendabreytingar árið 2018 og var nafni þess þá breytt í Dropout TV. „Ég er skrifa fyrir þættina Game Changer og Make Some Noise, sem eru tveir af þeirra aðalþáttum. Við þrjú í Tiny Idea erum síðan að þróa sjónvarpsþætti með framleiðslufyrirtæki akkúrat núna þar sem við þrjú leikum aðalhlutverkin,“ segir Hrannar. Að sögn Hrannars er pælingin með þáttunum umfangsmeiri og vandaðri útgáfa af herbergisfélagasketsum þeirra. „Þættirnir eru um okkur sem herbergisfélaga, við leikum herbergisfélaga í hverjum einasta skets, þó svo við búum ekki lengur saman. Við erum að þróa það núna og komin langt í því ferli þannig vonandi fer það í gang á næsta ári,“ segir hann. „Svo bara því meira sem við gerum og því fleiri myndbönd sem við búum til því stærra verður þetta og ég er mjög spenntur fyrir því hvernig þetta er búið að þróast. Og spenntur hvað kemur næst, hvað sem það verður,“ segir hann að lokum.
TikTok Bandaríkin Grín og gaman Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ Kjartan Logi Sigurjónsson hefur nýverið vakið mikla athygli fyrir grínsketsa á TikTok og Instagram. Hann birtir daglega nýjan skets og tugþúsundir manna hafa horft á marga þeirra. Kjartan á ekki langt að sækja grínið enda sonur Sigurjóns Kjartansonar. 26. september 2025 12:31 Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira
Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ Kjartan Logi Sigurjónsson hefur nýverið vakið mikla athygli fyrir grínsketsa á TikTok og Instagram. Hann birtir daglega nýjan skets og tugþúsundir manna hafa horft á marga þeirra. Kjartan á ekki langt að sækja grínið enda sonur Sigurjóns Kjartansonar. 26. september 2025 12:31