Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Valur Páll Eiríksson skrifar 23. september 2025 13:00 Davíð Tómas opnaði sig um málið við Vísi í morgun. vísir/Diego Forráðamenn Körfuknattleikssambands Íslands munu ekki tjá sig um dómaramál innan hreyfingarinnar að svo stöddu. Gustað hefur um sambandið eftir viðtöl við Davíð Tómas Tómasson og Jón Guðmundsson á Vísi í dag.
Davíð Tómas sagði í viðtali við Vísi í morgun frá því að hann væri hættur dómgæslu 36 ára að aldri en geri það ekki að eigin frumkvæði. Þrátt fyrir að vera einn tveggja alþjóðadómara landsins fær hann ekki verkefni hjá KKÍ, og hefur raunar ekki fengið að dæma leik síðan í mars. Það er sagt vegna samskiptaörðugleika við dómaranefnd KKÍ sem hefur ekki veitt Davíð áheyrn um margra mánaða skeið, að hans sögn. „Þetta er ekki uppbyggilegt starfsumhverfi. Þeir sem eru við stjórnvölin hjá KKÍ hafa skapað þessa menningu, sem veldur því að metnaðarfullt fólk hrökklast úr dómgæslustörfum,“ sagði Davíð meðal annars í viðtalinu um starfsumhverfið sem nefndin hefði skapað. Davíð sé ekki sá eini sem hafi hrökklast úr stéttinni vegna samskipta við nefndina, en Jón Guðmundsson segir svipaða sögu. „Maður hafði skoðanir á hlutunum og þegar maður varpaði þeim fram fór það misvel í fólk. Ég skil það alveg að menn hafi sitt hvora skoðunina á þessu. En á sínum tíma fannst mér þetta frekar skítt,“ sagði Jón meðal annars. Ekki hefur náðst í Jón Bender, formann dómaranefndar KKÍ, vegna málsins. Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, sagði í samtali við íþróttadeild að forráðamenn sambandsins myndu ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
KKÍ Körfubolti Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira