Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Bændaferðir 24. september 2025 08:47 Framundan hjá Bændaferðum eru spennandi gönguskíðaferðir, meðal annars til Seefeld í Tíról, Toblach í dölum Dólómítanna og Lillehammer í Noregi. Ferskt fjallaloft og snæviþaktar brekkur leggja grunninn að vel heppnuðu vetrarfríi. Bændaferðir bjóða í ár upp á úrval fyrsta flokks skíðaferða til Evrópu þar sem bæði gönguskíðafólk og svigskíðagarpar finna sitt uppáhald.
Framundan eru spennandi gönguskíðaferðir til Seefeld í Tíról, Toblach í dölum Dólómítanna og Lillehammer í Noregi. Þá standa einnig til boða svigskíðaferðir til Saalbach-Hinterglemm og Sölden í Austurríki, þar sem ævintýri, skemmtun og slökun fara saman. Fátt jafnast á við nýsporað skíðasvæði í snæviþöktum fjallasal Reynsla og fjölbreytni Bændaferðir hafa boðið upp á skíðaferðir allt frá árinu 2005 og vinsældirnar hafa haldist stöðugar. Fyrirtækið leggur áherslu á að mæta ólíkum óskum, hvort sem fólk vill fá skipulagða kennslu eða frekar njóta leiðsagnar í hefðbundnum ferðum. Í ferðunum er boðið upp á kennslu á gönguskíði „Við bjóðum bæði upp kennsluferðir sem henta jafnt byrjendum sem lengra komnum og hefðbundnar skíðagönguferðir þar sem er ekki skipulögð kennsla og henta því frekar aðeins lengra komnum. Í kennsluferðunum eru skíðakennarar með æfingar flesta daga, bæði fyrir og eftir hádegi. Í hefðbundnu ferðunum eru tveir fararstjórar með skipulagða dagskrá og bjóða upp á styttri og lengri ferðir þar sem gjarnan er staldrað við í hádeginu á notalegum veitingastöðum,“ útskýrir Helga Björg Ragnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Bændaferðum. Nánar um skíðaferðir hér. Á gönguskíðum í Seefeld Seefeld er ein af perlum Tíról-svæðisins í Austurríki. Bærinn stendur í 1.200 metra hæð og er umkringdur fjöllum sem gera svæðið einstaklega fallegt. Hér er að finna meira en 245 km af skíðagöngubrautum sem tengja saman fimm þorp. Þetta er fimm stjörnu skíðagöngusvæði sem hefur oftar en einu sinni verið valið það besta í Evrópu. Seefeld bærinn er ein af perlum Tíról-svæðisins í Austurríki Ferðalangar geta einnig tekið kláfinn upp á Roshütte í 1.784 metra hæð og notið útsýnisins yfir dali og fjöll. Þar er vinsæll fjallaskáli sem býður upp á hlýja stemningu eftir dag í brautunum. Ævintýralegt landslag mætir gönguskíðafólki í Austurríki Toblach í Dólómítunum Dólómítarnir í Suður-Tíról eru á heimsminjaskrá UNESCO og ástæða þess er augljós: stórbrotin náttúra, sérstæð menning og sögulegt mikilvægi. Í dalnum Hochpustertal liggja um 200 km af skíðagöngubrautum sem henta jafnt byrjendum sem reynslumiklum skíðagörpum. Hópur á vegum Bændaferða á góðri stund eftir vel heppnaðan skíðadag í Toblach. Bærinn Toblach, oft kallaður „Hliðið að Dólómítunum“, liggur í miðju svæðisins og býður upp á frábærar tengingar við allar helstu brautir. Á næsta leiti er Cortina d’Ampezzo sem hýsir hluta Vetrarólympíuleikanna árið 2026 – sannkallaður vitnisburður um gæði svæðisins. Lillehammer í Noregi Lillehammer er eitt þekktasta vetraríþróttasvæði Norðurlanda, ekki síst vegna Vetrarólympíuleikanna 1994. Þar er dvalið á góðu hóteli við Hafjell svæðið þar sem hægt er að renna beint úr dyrum út í brautirnar. Þéttir barrskógar og fjöll mynda ógleymanlega umgjörð um skíðabrautirnar í Noregi. Í nágrenninu er Øyerfjellet með um 300 km af skíðagönguleiðum sem tengjast svæðum á borð við Sjusjøen og Nordseter. Svæðið breytist í ævintýraland yfir veturinn, þar sem víðáttumiklar snjóbreiður, þéttir barrskógar og fjöll mynda ógleymanlega umgjörð. Á meðan á dvöl stendur fer fram hin vinsæla keppni Birkebeinerrennet sem margir Íslendingar hafa tekið þátt í og er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja spreyta sig í alþjóðlegu móti. Nánar um ferðina til Lillehammer hér. Bændaferðir tryggja faglegt skipulag og skemmtilega samveru. Þetta er tækifæri til að hlaða batteríin, njóta vetrarins og skapa minningar sem lifa langt fram á næsta sumar.
Ferðalög Heilsa Mest lesið „Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Lífið Óvænt stjörnuskipti í jólasýningu Þjóðleikhússins Lífið Unnur Birna verður Elma Lífið TikTok besta leitarvélin í ferðinni til Suður-Kóreu Ferðalög Claudia Cardinale er látin Lífið Framkvæmdastjóri Olís selur glæsihús í Garðabæ Lífið Mun aldrei gleyma augnaráði bílstjórans Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Fékk sterkari bein án lyfja Lífið samstarf Bragðgóð graskers- og púrrlaukssúpa með karrý og kókosmjólk Lífið Fleiri fréttir Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira