Sædís og Arna í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2025 16:11 Sædís Rún Heiðarsdóttir og Arna Eiríksdóttir fagna með liðsfélögum sínum og stuðningsmönnum í Ungverjalandi í dag. vísir/ÓskarÓ Sædís Rún Heiðarsdóttir og Arna Eiríksdóttir munu spila á stærsta sviði Evrópuboltans í vetur því lið þeirra, Vålerenga frá Noregi, tryggði sér í dag sæti í Meistaradeild Evrópu með sannfærandi hætti.
Norsku meistararnir mættu Ferencváros frá Ungverjalandi í einvígi um sæti í Meistaradeildinni og unnu seinni leikinn í dag á útivelli, 2-1, og einvígið þar með 5-1. Arna lék í dag sinn fyrsta leik fyrir Vålerenga eftir komuna frá FH. Vålerenga varð þar með tíunda liðið til að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni en undankeppninni lýkur í dag. Átján lið spila í aðalkeppninni og verða fyrstu leikirnir 7. og 8. október. Fyrirkomulag keppninnar verður með sama sniði og í Meistaradeild karla, og spila öll liðin því í sömu deild í stað riðla áður. Óhætt er að segja að Vålerenga bætist við góðan hóp því fyrir eru örugg í keppninni lið Arsenal, Barcelona, Bayern, Benfica, Chelsea, Juventus, Lyon, PSG og Wolfsburg. Sædís lék allan leikinn í Ungverjalandi í dag en Arna seinni hálfleikinn. Elise Thornes kom Vålerenga í 2-0 með mörkum á fyrstu sautján mínútum leiksins en Viktória Nagy skoraði eina mark heimakvenna. Sædís lék einnig í aðalkeppni Meistaradeildarinnar í fyrra en Vålerenga endaði þá neðst í sínum riðli, eftir leiki við Arsenal, Bayern og Juventus. Eina stig norsku meistaranna kom á heimavelli gegn Bayern.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Sjá meira