Fjallar um afstöðu Elísabetar til Brexit og hvernig Kamilla varðist árás Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. september 2025 07:47 Kamilla varð drottning þegar Elísabet féll frá. Getty/Max Mumby Elísabet II Englandsdrottning var á móti Brexit og vildi vera áfram innan Evrópusambandsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Valentine Low, sem fjallaði um konungsfjölskylduna fyrir The Times.
Í bókinni, Power and the Palace, er einnig greint frá því hvernig Kamilla drottning varði sig gegn kynferðisbrotamanni á 7. áratug síðustu aldar. Kamilla er sögð hafa trúað Boris Johnson, þáverandi borgarstjóra Lundúna, frá atvikinu. „Ég gerði eins og móðir mín hafði kennt mér. Ég tók af mér skóinn og sló hann í hneturnar með hælnum,“ er Kamilla sögð hafa sagt Johnson. Atvikið átti sér stað um borð í lest á leið til Lundúna en samkvæmt Low hafði Kamilla uppi á lögreglumanni við komuna á Paddington-lestarstöðinni og vísaði honum á árásarmanninn. Elísabet heitin var þekkt fyrir það að tjá sig ekki opinberlega um pólitík en að sögn Low var hún persónulega á móti Brexit, þrátt fyrir að þykja regluverk Evrópusambandsins þungt í vöfum. Þá er Elísabet sögð hafa átt í góðum samskiptum við Harold Wilson og John Major en sambandið við Margaret Thatcher hafi verið erfiðara. BBC hefur tekið saman nokkrar uppljóstranir úr bókinni en meðal þeirra má nefna að það virðast hafa verið stjórnvöld frekar en konungshöllin sem vildi gera sem mest úr krýningu Karls III eftir andlát Elísabetar. Krýningin og hátíðarhöldin í kringum hana kostuðu á endanum 72 milljónir punda, jafnvirði tæplega tólf milljarða króna.
Bretland Kóngafólk Brexit Elísabet II Bretadrottning Karl III Bretakonungur Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira