Doncic og félagar í brasi Siggeir Ævarsson skrifar 30. ágúst 2025 17:33 Luka Doncic skoraði 39 stig í dag en það dugði skammt Mynd FIBA Slóvenar eru án sigurs á Evrópumótinu í körfubolta eftir 103-95 tap gegn Frökkum í dag.
Frakkar eru án sinnar stærstu stjörnu og sinna hávöxnustu leikmanna en þeir Victor Wembanyama og Rudy Gobert eru báðir fjarri góðu gamni. Það hefur þó ekki komið að sök enn sem komið er enda körfubolti liðsíþrótt og Frakkar með tvo sigri í D-riðli eftir tvo leiki. Leikurinn var jafn og spennandi fram á lokamínúturnar þar sem Luka Doncic fór mikinn í liði Slóvena. Það virtist þó draga af honum þegar leið á enda var hann oftar en ekki í strangri gæslu, oftar en ekki tvídekkaður. Frakkar gengu á lagið og gerðu út um leikinn á lokasprettinum og unnu að lokum nokkuð öruggan sigur. Endirinn á leiknum setti þó dökkan blett á annars nokkuð skemmtilegan körfuboltaleik en þegar rúm sekúnda var eftir og leikmenn farnir að þakka hver öðrum fyrir leikinn tók Sylvain Francisco sig til og keyrði á körfuna strax eftir að hafa tekið í hendina á Doncic. Slóvenar voru að vonum ósáttir og upp úr sauð á vellinum. Leikmenn í báðum liðum var vísað af velli og spurning hvort leikbönn fylgi í kjölfarið. Luka Doncic var langstigahæstur í liði Slóvena með 39 stig, átta fráköst og níu stoðsendingar en Edu Muric kom næstur með 16. Hjá Frökkum var áðurnefndur Sylvain Francisco stigahæstur með 32, en hann skoraði grimmt í fjórða leikhluta, 14 stig alls.
EM 2025 í körfubolta Körfubolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Frakkland - Marokkó | Átta liða úrslitin hefjast Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira