Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Siggeir Ævarsson skrifar 24. ágúst 2025 08:02 Jordan Loyd hefur þegar leikið æfingaleiki með Pólverjum og er klár í slaginn fyrir EM. EPA/Jarek Praszkiewicz Pólska landsliðið hefur fengið góðan liðstyrk fyrir komandi Evrópumót í körfubolta en hinn bandaríski Jordan Loyd mun leika með liðinu á mótinu.
Pólska liðið varð fyrir töluverðri blóðtöku fyrr í sumar þegar Jeremy Sochan meiddist en Sohan leikur með San Antonio Spurs í NBA. Sochan á pólska móður og því var hans leið í landsliðið nokkuð hrein og bein en Loyd hefur engin tengsl við Pólland. Hann fékk einfaldlega afhent pólskt vegabréf á dögunum í þeim eina tilgangi að bæta honum í hópinn fyrir Evrópumótið. Hinn bandaríski Jerrick Harding fékk einnig sömu sérmeðferð en aðeins má hafa einn „erlendan“ leikmann í hópnum. Loyd, sem er 32 ára, býr yfir mikilli reynslu en hann leikur í dag með Monaco í frönsku deildinni. Hann hefur einnig leikið m.a. á Spáni, Rússlandi og Ísrael og tekið fjórum sinnum þátt í EuroLeague. Þá lék hann tólf leiki með Toronto Raptors í NBA tímabilið 2018-2019. Karfan.is greindi upphaflega frá þessum áhugaverðu „félagaskiptum“.
EM 2025 í körfubolta Körfubolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Fleiri fréttir Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira