Sælkerabíó á RIFF: Sjónræn matarveisla á Plöntunni og smakkbíó á Ramen Momo Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. ágúst 2025 08:42 Gestum býðst að horfa á núðluvestrann Tampopo samhliða ramenáti eða sælkeramyndina Big Night með þriggja rétta sjónrænni veislu. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) býður árlega til sérviðburðar þar sem hátíðin fær veitingastaði bæjarins í samstarf. Úr verður bíóveisla fyrir bæði augun og bragðlaukana en í ár verður boðið upp á sjónræna matarveislu og smakkbíó.
Sjónræn ítölsk matarveisla Fyrri viðburðurinn tengist sælkeramyndinni Big Night (1996) sem fjallar um bræðurna Primo og Secondo, sem eru leiknir af Stanley Tucci og Tony Shaloub, sem reka ítalskan veitingastað í New Jersey. Reksturinn er í járnum og í von um að bjarga honum ákveða bræðurnir að leggja allt undir með því að skipuleggja veglega veislu. Plantan Bistró, sem er til húsa í Norræna húsinu í Vatnsmýrinni, mun bjóða upp á eigin „Big Night“ veislu þar sem boðið verður upp á þriggja rétta matseðil innblásinn af matnum í myndinni samhliða sýningu á myndinni. „Ég held að þetta sé frábær mynd fyrir matartengda kvikmyndasýningu, af því að í henni er veislan með fjölskylduyfirbragði þar sem langborð svignar undan krásum og allir fá sér af, og það gerir veisluna ennþá persónulegri og notalegri, og færir matargestina nær hvert öðru,” segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, meðeigandi og matreiðslumeistari á Plöntunni. Viðburðurinn verður haldinn 27. september næstkomandi og kostar 12.900 krónur inn á hann. Kósý núðluvestri og heitar núðlur Á hinum viðburðinum verður svokallað smakkbíó á Ramen Momo þar sem gestum býðst að upplifa töfra japanskrar matarmenningar meðan horft er á kósý-núðluvestrann Tampopo (1985) Tveir vörubílstjórar slysast inn á hrörlega vegasjoppu þar sem ekkjan Tampopo selur ramen núðlur. Hún biður þá félaga í framhaldinu að hjálpa sér að gera sjoppuna að núðlusjoppu í fremstu röð. Myndin er uppfull af kostulegum uppákomum og skapar hjá áhorfendum óslökkvandi löngun í japanskan mat. Smakkbíóið er skipulagt í samstarfi við Ramen Momo við Tryggvagötu en viðburðurinn verður haldinn í Háskólabíó. Ramen Momo er eina ramen-gerðin á Íslandi og fyrsti núðlubar landsins til að framleiða lífrænar fersknúðlur frá grunni. „Ég held að þessi sýning sé frábært tækifæri til að hitta aðra ramen-sælkera og eiga ógleymanlegt kvöld með ljúffengum mat og dásamlegri bíómynd. Ég á von á frábærri stemningu með sterkum tilfinningum, í takt við matinn og myndina!” segir Romà Gomez Cortada, yfirkokkur á Ramen Momo, um viðburðinn. Tampopo verður sýnd í Háskólabíó 28. september og kostar einnig 12.900 krónur inn á viðburðinn.
Matur Bíó og sjónvarp Japan Ítalía Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fleiri fréttir Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira