Tíu látnir í Graz: Byssumaðurinn sagður vera gamall nemandi Agnar Már Másson skrifar 10. júní 2025 12:09 Árásarmaðurinn er talinn hafa svipt sig lífi. Hið minnsta tíu eru látnir og fleiri særðir eftir skotárás í menntaskóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn er meðal látinna en lögregla segir að hann sé fyrrverandi nemandi við skólann.
Kronen Zeitung greindi frá því í morgun að umfangsmikil lögregluaðgerð stæði yfir við BORG-menntaskólann við götuna Dreierschützengasse í Graz, sem er næststærsta borg Austurríkis. Miðillinn segir árásina eina verstu skotárás í sögu landsins. Tíu eru látnir; átta nemendur, einn fullorðinn og árásarmaðurinn. Fjöldi særðra er óljós en nemur tveggja stafa tölu að sögn lögreglu. Bæði nemendur og kennarar urðu fyrir skoti. Þýskir miðlar greina frá því að árásarmaðurinn sé 22 ára fyrrverandi nemandi við skólann. Hann hafi borið tvö skotvopn, skammbyssu og haglabyssu, og hafið skothríð inni í tveimur skólastofum. Lögreglu grunar að árásarmaðurinn hafi talið sig þolanda eineltis í skólanum. Þýskir miðlar segja að hann hafi svipt lífi í kjölfar árásarinnar og fundist látinn inni á salerni skólans. Um 160 sjúkraflutningamenn voru ræstir út, að sögn Kronen Zeitung, og alls 65 sjúkraflutningabílar. Christoph Wiederkehr, menntamálaráðherra Austurríkis er á leiðinni til Graz vegna árásarinnar. Viðbragðsaðilar eru nú að yfirgefa svæðið þar sem það er talið öruggt að nýju.
Austurríki Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira