Má ekki koma inn í íþróttahús í tíu mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2025 07:00 Dimitris Giannakopoulos, eigandi Panathinaikos, er skapheitur maður og nú er hann kominn í langt bann. Getty/Luca Sgamellotti/ Panathinaikos er í úrslitaeinvíginu um gríska meistaratitilinn í körfubolta en eigandi félagsins má ekki koma inn í íþróttahúsin í Grikklandi næstu mánuðina.
Dimitris Giannakopoulos, eigandi Panathinaikos, var dæmdur í tíu mánaða bann frá öllum íþróttahúsum Grikklands eftir framkomu sína á leik tvö í úrslitaeinvígi Panathinaikos og Olympiacos. Staðan er 1-1 í einvíginu en forráðamenn deildarinnar þurftu að fresta leik þrjú á meðan mál Giannakopoulos var tekið fyrir. Giannakopoulos fékk einnig tuttugu þúsund evru sekt og félagið hans fékk að auki 44 þúsund evru sekt. Tuttugu þúsund evrur eru um 2,9 milljónir króna en 44 þúsund evrur eru 6,3 milljónir íslenskra króna. Atvikið gerðist 1. júní en mikið hefur gengið á milli eiganda félaganna tveggja sem saka hvorn annan um ýmislegt. Giannakopoulos fer í bann fyrir mjög óviðeigandi hegðun sína en hann fór inn á völlinn til að hrauna yfir eiganda Olympiacos og segja meðal annars mjög ljót orð um hann og dóttur hans. Giannakopoulos hótaði forseta Olympiacos ítrekað og var gjörsamlega trítilóður inn á vellinum. Panathinaikos hélt því fram að þetta hafi allt byrjað vegna þessa að stuðningsmenn Olympiacos fóru að kalla ljót orð í átt að Giannakopoulos og fjölskyldu hans. Gríska körfuboltsambandið hafði frestað úrslitaeinvíginu en eftir þennan dóm þá mun það halda áfram. Staðan er 1-1 en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður grískur meistari.
Körfubolti Grikkland Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira