Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júní 2025 23:14 Lítil skriða féll í Neskaupstað. Vísir/Vilhelm Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna skriðuhættu og vatnavaxta á norðan- og austanverðu landinu. Grjóthrun varð á Siglufjarðarvegi í kvöld og lítil skriða féll í Neskaupstað. Enn er gul viðvörun í gangi á stórum hluta landsins.
Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Veðurstofunnar mun rigna áfram á Austfjörðumí nótt en rigningin minnkar á morgun. Mesta úrkoman mun falla á Tröllaskaga og Flateyjarskaga. Í tilkynningu ofanflóðavaktar Veðurstofunnar um skriðuhættu segir að í gera megi ráð fyrir mikilli rigningu nyrst á Tröllaskaga og Flateyjarskaga í dag og fram á helgi, en að aðfaranótt fimmtudags muni draga eitthvað úr ákefðinni. Eins megi búast við talsverðri úrkomu á Skaga, Vatnsnesi, Ströndum og á Tjörnesi næstu sólarhringa. Á þessum slóðum verður hætta á skriðuföllum og vatnavöxtum næstu daga, og hefur verið gefin út úrkomuviðvörun fyrir þessi svæði. Skriðuviðvörun er því í gildi fyrir norðanvert landið, frá Ströndum að Glettingi. Þá segir í tilkynningunni að á norðanverðum Austfjörðum megi búast við úrkomu. Hún verði mest í grennd við Vopnafjörð, Borgarfjörð eystri og Mjóafjörð. Spáin geri ráð fyrir minni úrkomu á Seyðisfirði og Eskifirði, en þó megi búast við þónokkurri úrkomu á þeim slóðum. Í tilkynningunni segir einnig að í miklum vatnsveðrum geti verið erfitt að spá fyrir um staðbundna úrkomu í flóknu fjarðarlandslagi, og því geti verið erfitt að meta hvar skriðuhættan sé mest. Snöggar breytingar í hitastigi og vindátt geti valdið því að aðstæður breytast snögglega, og hætta getur skapast á ólíklegum stöðum.
Veður Færð á vegum Fjallabyggð Fjarðabyggð Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Sjá meira