Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 21. maí 2025 09:50 Hér má sjá þær Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, Margréti Vilhjálmsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur og Ágústu Evu Erlendsdóttur, sem allar hafa túlkað hina ástsælu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraímsdóttur í atvinnuleikhúsi, ásamt Birtu Sólveigu Söring Þórisdóttur fyrir miðju. Þjóðleikhúsið Birta Sólveig Söring Þórisdóttir mun fara með hlutverk Línu Langsokks í nýrri uppsetningu Þjóðleikhússins sem verður frumsýnd þann 13. september næstkomandi. Nú þegar hafa hátt í fimmtán þúsund miðar selst og stefnir í að allar 40 sýningarnar verði uppseldar fyrir frumsýningu.
Birta útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2024 og lauk áður söngnámi. Hún þreytti frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í söngleiknum Stormi og lék Auði í Litlu hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Akureyrar. Fyrr í vikunni hlaut hún tilnefningu til Grímunnar sem leikkona ársins í aðalhlutverki – fyrir sitt fyrsta hlutverk í atvinnuleikhúsi. Í vetur lék hún einnig í sýningunum Frost og Yermau. Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu kemur fram að mikil eftirvænting hafi ríkt um hver færi með hlutverk Línu í þessari metnaðarfullu uppfærslu. Sýningin verður heljarinnar sjónarspil sem höfðar til breiðs aldurshóps. Fimm flottar Línur Eldri leikkonur sem hafa áður túlkað hina ástsælu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraímsdóttur í atvinnuleikhúsi hittust í vikunni og buðu Birtu velkomna í hópinn. Meðal þeirra eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Leikstjóri sýningarinnar er Agnes Wild, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frábærar barnasýningar. Karl Olgeirsson er tónlistarstjóri og má m.a. nefna einstaklega vel heppnaðar útsetningar hans á lögunum í Kardemommubænum. Finnur Arnar hannar leikmynd, Eva Björg Harðardóttir sér um búninga, Elma Rún Kristinsdóttir er danshöfundur og Ásta Jónína og Björn Bergsteinn hanna lýsingu. Þórarinn Eldjárn er þýðandi verksins. Lína Langsokkur er meðal ástsælustu barnabóka hins vestræna heims og hefur notið gríðarlegra vinsælda meðal barna á Íslandi. Hún er óborganlega skemmtileg og uppátækjasöm, en sagan er einnig mannleg og falleg. Lína Langsokkur þykir frábær fyrirmynd – en nú eftir rúma viku verður því fagnað víða um heim að 80 ár eru liðin frá því að Astrid Lindgren skapaði þessa ástsælu persónu. Nánar um sýninguna á vef Þjóðleikhússins.
Leikhús Menning Tengdar fréttir Stormur í Þjóðleikhúsinu Ég sat í auga stormsins og naut hverrar mínútu. Una Torfa getur leikið, látið engan segja ykkur annað. Hún syngur og semur lög og texta sem hafa hrifið kynslóð hennar og uppfyrir. Hún er með dásamlega rödd sem þú þekkir um leið og þú heyrir hana syngja. Hún er mjög góður texta- og lagasmiður. Þú getur vart beðið um meira. 24. apríl 2025 14:32 Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil. 7. mars 2025 14:00 Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira
Stormur í Þjóðleikhúsinu Ég sat í auga stormsins og naut hverrar mínútu. Una Torfa getur leikið, látið engan segja ykkur annað. Hún syngur og semur lög og texta sem hafa hrifið kynslóð hennar og uppfyrir. Hún er með dásamlega rödd sem þú þekkir um leið og þú heyrir hana syngja. Hún er mjög góður texta- og lagasmiður. Þú getur vart beðið um meira. 24. apríl 2025 14:32
Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil. 7. mars 2025 14:00