Lífið

Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flótta­fólki

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Meðlimir Pussy Riot hafa vakið athygli um allan heim sem listakonur og andófskonur.
Meðlimir Pussy Riot hafa vakið athygli um allan heim sem listakonur og andófskonur. Getty

Rússneska pönkhljómsveitin Pussy Riot og Páll Óskar eru meðal þeirra sem troða upp í Iðnó 11. júlí á svokallaðri Hátíð gegn landamærum. Auk þeirra koma fram fjöldi tónlistamanna á hátíðinni sem haldinn er á vegum samtakanna No Borders.

Auk þeirra fyrrnefndu kemur fram tónlistarfólkið Ízleifur, Inspector Spacetime, Kusk og Óviti, Gróa, Alexander Jarl, Flesh Machine og sigurvegarar Músíktilrauna í ár Geðbrigði. DJ Óli Dóri sér svo um að þeyta skífum inn í nóttina.

Í tilkynningu segir að markmið hátíðarinnar sé að skapa vitundarvakningu um réttindabaráttu fólks á flótta og þeim erfiðu aðstæðum sem það býr við, bæði á Íslandi og um allan heim. 

„Þú vilt ekki missa af þessu magnaða kvöldi, þar sem tónlist og aktívismi mætast í dúndrandi og ógleymanlegri stemningu,“ segir í tilkynningu.

Meðlimir lista- og andófshópsins Pussy Riot hafa margir verið hraknir á flótta frá heimalandi sínu fyrir andóf gegn stjórnvöldum. Ljúdmílu Shtein og Maríu Alekhina var báðum veittur íslenskur ríkisborgararéttur árið 2022. Síðan þá hefur Ljúdmíla verið dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi fyrir færslur þar sem hún gagnrýndi innrás Rússlands í Úkraínu sem rússnesk yfirvöld töldu vanvirða rússneska herinn. Lögin hafa verið notuð til að bæla niður andóf gegn stjórnvöldum.

Annar meðlimur sveitarinnar hefur einnig búið hér á landi í nokkur ár. Hún segir aukna andúð gagnvart innflytjendum og flóttafólki valda sér þungum áhyggjum.

„Ég tel að með þessum viðburði fáum við öll tækifæri til að læra eitthvað nýtt hvert um annað og það er virkilega hvetjandi. Skilaboðin eru skýr: Opið hugarfar, ekki lokuð landamæri!“ er haft eftir henni í tilkynningu.

„Vertu með þann 11. júlí, þegar við komum saman til að fagna frelsinu sem felst í virku andófi, til að minna á að baráttan heldur áfram og til að fræða fólk um aðstæður flóttafólks.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.