Lífið

Í kossaflensi á Beyoncé

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Meghan Markle hertogaynja af Sussex og Harry Prins voru ástfangin upp fyrir haus á Beyoncé tónleikum.
Meghan Markle hertogaynja af Sussex og Harry Prins voru ástfangin upp fyrir haus á Beyoncé tónleikum. Instagram @meghan

Eitt frægasta par í heimi, hjónin Meghan Markle hertogaynja af Sussex og hennar heittelskaði Harry Bretaprins, fóru á alvöru stefnumót um helgina í Los Angeles um helgina. Parið birti myndir af sér í faðmlögum og kossum þar sem þau litu goðsögnina Beyoncé augum á tónleikum stjörnunnar.

Beyoncé er á trylltu tónleikaferðalagi um heiminn fyrir kúrekaplötuna Cowboy Carter sem hlaut Grammy verðlaun fyrr á árinu fyrir bestu plötuna. 

Markle hefur ekki haldið aðdáun sinni á Beyoncé leyndri í gegnum tíðina og ræddi hana meðal annars í Netflix þáttunum Harry & Meghan. 

Þar segist hertogaynjan hafa fengið SMS skilaboð frá Beyoncé þar sem Beyoncé segir Meghan að hún hafi verið valin til að brjóta bölvun margra kynslóða sem þurfti að laga. 

Harry og Meghan hittu Beyoncé og Jay Z fyrst árið 2019. Niklas Halle'n-WPA Pool/Getty Images

Meghan hefur varla þurft að sannfæra Harry að mæta með sér en hann tók þemað alla leið og mætti með kúrekahatt frá lúxus hatta-og tískuversluninni Kemo Sabe. Breska tískutímaritið Vogue skrifaði að parið væri meira fyrir kúrekahatta en kórónur en þau eru þekkt fyrir að fara eigin leiðir. Meghan birti myndasyrpu á Instagram síðu sinni þar sem hún skrifar: „Varðandi gærkvöldið... Takk Beyoncé og þitt teymi fyrir stórkostlega tónleika og mjög skemmtilegt deit kvöld. Mikil ást.“

Í syrpunni má meðal annars sjá Harry og Meghan í kossaflensi, góða stemningu í góðra vina hópi og kúrekakattinn góða sem Harry rokkaði og var merktur með nöfnum barna þeirra. 

Hatturinn sem Harry rokkaði var merktur með nöfnum barna hans og Meghan. Archi og Lili, ást stendur hægra megin. Instagram @meghan

Meghan var að sama skapi undir innblæstri kúrekatískunnar en hún mætti í gallakjól frá hátískuhúsinu Carolina Herrera í sandölum frá ítalska skóhúsinu Aquazzura.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.