Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. maí 2025 13:15 Maðurinn hefur verið handtekinn. Getty Maður hefur verið handtekinn í Ósaka í Japan grunaður um að hafa ekið bíl sínum í þvögu barna á leið sinni heim úr skólanum.
Ríkisútvarp Japans greinir frá því að um hálf tvö í dag að staðartíma hafi maðurinn viljandi ekið bíl sínum í þvögu barna á heimleið á rólegri íbúðargötu. Sjö ára stúlka braut á sér kjálkann og mörg börn særðust lítillega. Greint er frá því að þau hafi öll verið með meðvitund þegar þau voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Samkvæmt umfjöllun Guardian heitir sá handtekni Yuki Yazawa. Hann er 28 ára gamall, atvinnulaus og kemur úr Higashimurayama-hverfi Tókíóborgar. Enn liggur ekki fyrir á hvaða erindi hann var í Ósaka sem er um sex klukkustunda akstursfjarlægð frá Tókíó. Kennarar í grunnskólanum brugðust skjótt við og drógu Yuki úr bílnum en þar sat hann aðgerðalaus eftir árásina. „Ég var bara svo þreyttur á öllu að ég ákvað að keyra á grunnskólakrakkana til að drepa þá,“ hefur japanska ríkisútvarpið eftir árásarmanninum en þetta á hann að hafa sagt við lögreglumenn á vettvangi. Sjónarvottur segir einnig að hann hafi gert tilraun til að bakka bílnum yfir börnin eftir að hann hafði ekið í þvöguna. Hann hafi einnig ekið óreglulega og var greinilega í geðshræringu.
Japan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira