Fótboltafélagið inn á borð hjá dýraeftilitinu og matvælastofnun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. apríl 2025 11:02 Axel Kryger, leikmaður Bryne, fékk lambið í fangið eftir að hafa verið valinn bestur á vellinum í 3-1 sigri Bryne á Haugesund. Bryne FK Norska úrvalsdeildarliðið Bryne verðlaunaði mann leiksins á dögunum með lifandi lambi en dýraverndarsinnar í Noregi voru alls ekki hrifnir.
Axel Kryger, leikmaður Bryne, fékk lambið í fangið eftir að hafa verið valinn bestur á vellinum í 3-1 sigri Bryne á Haugesund. Hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir nokkrar mínútur. Bryne hafði áður gefið manni leiksins fjóra bakka af eggjum en félagið er með það markmið að vekja athygli á mikilvægi landbúnaðar fyrir svæðið. Nú fóru þeir einu skrefi lengra og voru að afhenta mann leiksins lifandi dýr. Norska dýraeftirlitið ætlar að fara með málið lengra því auk þess að gagnrýna þetta harðlega í fjölmiðlum þá ætlar dýraeftilitið að senda málið inn á borð hjá matvælaöryggisstofnun Noregs. Norska ríkisútvarpið fjallar um málið. Dýraeftirlitsmenn er mjög hneykslaðir og telja að þetta sé hreint og klárt brot á reglum um velferð dýra. Forráðamenn Bryne hafa varið uppátækið sitt í fjölmiðlum og segja að það hafi aðeins verið hugsað sem táknmynd fyrir gildi héraðsins og hversu umhugað fólki á svæðinu sé um velferð dýra. Það fylgir líka sögunni að leikmaðurinn fékk ekki að taka lambið heim og skella því á grillið. Bóndinn sem átti lambið var líka á staðnum og það fór síðan aftur heim með honum.
Norski boltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjá meira