„Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. mars 2025 21:30 Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, trúir því ekki að þessi frammistaða sé það sem hans menn vilja standa fyrir. Vísir/Anton Brink „Við vorum alls ekki góðir í kvöld og getum sagt að það eina sem við tökum með úr þessum leik eru tvö stig“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir að hafa séð sína menn kreista út 85-81 sigur gegn föllnu liði Hauka í nítjándu umferð Bónus deildar karla. „
Við vorum ólíkir sjálfum okkur og mér fannst svipað upp á teningunum á móti ÍR [í síðasta leik]. Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við eða við séum orðnir værukærir eftir að hafa unnið einhverja leiki, en við þurfum allavega að spila töluvert mikið betur ef við ætlum að gera eitthvað í vetur“ hélt hann svo áfram. Haukar leiddu nánast allan leikinn og voru átta stigum yfir þegar fjórði leikhluti hófst, en Valsmönnum tókst að snúa leiknum við á síðustu stundu. „Við erum bara heppnir að fara með sigurinn af hólmi og tökum hann. Hann telur náttúrulega eins mikið og aðrir en frammistaðan böggar mann“ Valur á framundan leiki gegn Grindavík og Tindastóli í lokaumferðum deildarinnar áður en úrslitakeppnin hefst. Ljóst er að mikið þarf að lagast ef meistararnir ætla að verja titilinn í vor. „Ég held að það sé bara sitt lítið af hverju [sem þarf að lagast]. Ég trúi allavega ekki að þetta sé það sem við viljum standa fyrir þannig að ég á ekki von á öðru en að mínir menn muni kveikja á sér og mæta klárir á næstu æfingu“ sagði Finnur Freyr að lokum.
Valur Bónus-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira