Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. febrúar 2025 13:01 Einar Bárðarson hefur haft sig mikið í frammi varðandi umhverfismál og lagt sín lóð á vogaskálarnar með plokki. Hann hefur staðið fyrir stóra plokkdeginum árlega. Einar Bárðarson plokkari er hugsi yfir umræðum á Alþingi þegar húsnæðisvandi og kennaraverkfall liggi þungt á þjóðinni. Rifrildi þingflokka um herbergi og margra klukkutíma umræður um flöskutappa veiti ekki á gott.
Einar stingur niður penna á Vísi nú þegar þing hefur verið starfandi í nokkrar vikur eftir kosningarnar í nóvember. Þar er að finna marga nýja þingmenn sem Einar lýsir sem hluta af kraftmiklum hóp sem vísast vilji allir hag þjóðarinnar betri en fyrir komu þeirra á þingið. „Ekki veitir af einbeitingu og þreki því verkefnin sem við blasa eru ærin. Það þarf þjóðarátak í samgöngum, heilbrigðismálum og skólamálum ef marka mátti umræðuna fyrir og eftir kosningar, að ekki sé minnst á húsnæðismál, aðgengi að lánakjörum á forsendum sem venjulegt fólk ræður við og fjölmargt fleira,“ segir Einar. Hann staldrar við nýlegar umræður af þinginu. „Þingheimur einhenti sér í störfin og fyrstu fréttir af húsnæðismálum voru deilur þingflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins um hver ætti að vera í hvaða þingflokksherbergi. Kannski ekki beint það sem kjósendur höfðu í huga,“ segir Einar. Málinu lauk með því að ósáttur Sjálfstæðisflokkur missti herbergi sitt og gaf Samfylkingunni listaverk í innflutningsgjöf, bláan hval. „Næsta mál snéri að því hvort þingmaður Viðreisnar þyrfti að fara úr gallabuxunum þegar hann mætti í vinnuna. Varla efst í huga kjósenda þegar gengið var til kosninga,“ segir Einar um gallabuxur Jóns Gnarr sem hefur meðfram þingstörfum sýnt fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum hvar klósettið og matsalinn sé að finna á Alþingi. „Þá var tekist á um það í fimm klukkutíma í síðustu viku á sama tíma og yfirvofandi var enn eitt kennaraverkfallið, hvort plastappar á einntota drykkjarmálum skyldu að vera áfastir eða ekki. Mitt svar við þeirri spurningu er reyndar afdráttarlaust já!“ Einar hefur sem plokkari varið löngum tímum á vetum úti og tínt rusl. Samkvæmt hans reynslu er mannfólkinu ekki treystandi fyrir lausum töppum á einnota drykkjarvörum. „Einn ágætur þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir að hann hefði misst lífsviljann við tilhugsunina um að þurfa að gangast undir þessa kvöð. Ef satt reynist verðum við heldur betur að spýta í lófanna í geðheilbrigðismálum og forvörnum vegna sjálfsvíga sem eru líka grafalvarleg vandamál,“ segir Einar. Jón Pétur Zimsen fyrrverandi skólastjóri er þingmaðurinn sem um ræðir. „Ég hef síðustu ár tekið þátt í því með stórum hópi fólks, að tína rusl úr umhverfinu okkar. Plasttappar er eitt algengasta ruslið sem finnst í umhverfinu okkar samkvæmt Ocean Conservancy. Ekki það að ég þurfi að leita langt yfir skammt til að sannfærast um það sem ég hef séð eigin augum. Fiskar og fuglar eiga til að rugla plasttöppum gjarnan saman við fæðu, sem getur valdið köfnun, meltingarvandamálum eða dauða.“ Áætlað sé að 100-150 milljónir tonna af plasti hafi nú þegar safnast saman í sjónum og um 8 milljónir tonna bætast við árlega. Plasttappar teljist meðal 10 algengustu rusltegundanna. Fólk sé kosið á Alþingi til að bæta hag okkar allra. Ekki til þátttöku í ræðukeppnum á borð við Morfís. „Flestir á Alþingi enda of gamlir til að skrá sig í slíka keppni. Ég óska öllum þingmönnum velfarnaðar í störfum sínum en nú er kosningabaráttan að baki. Nú þarf að taka á málum sem eru alvöru áskoranir. Sýnið öll, kæru þingmenn - og konur, að ykkur er treystandi til góðra verka og munið að Stóri plokkdagurinn er 27. apríl næstkomandi. Þá skulum við fara saman og tína tappa!“
Umhverfismál Alþingi Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira