Lada Sport okkar tíma Tork gaur 28. febrúar 2025 11:25 James Einar Becker eða Tork gaur, skoðar hér Dacia Duster Extreme III Splunkuný þáttaröð af Tork gaur hófst í janúar hér á Vísi. Í þriðja þætti skoðar James Einar Becker Dacia Duster Extreme III, sem er hagkvæmasti jepplingurinn til sölu í dag. Hann hefur þetta að segja um bílinn. „
Dacia Duster eru þeir bílar sem allir Íslendingar sjá en eiginlega enginn Íslendingur á því bíllinn er þekktur fyrir að vera undirstaða Íslenska bílaleiguflotans og eitt helsta kennileiti Íslenskrar ferðaþjónustu á þjóðvegum landsins. Það er samt ákveðin synd að eingöngu túristar fái að njóta þess litla grjótharða jepplings. Betra gildi fyrir aurinn er vandfundið þegar litið er til þess hvað fólk getur fengið fyrir peninginn þegar kemur að því að kaupa nýjan og afskaplega hagkvæman bíl,“ segir James Einar. Fram að þessu hefur Dacia Duster verið þekktastur fyrir að vera undirstaða Íslenska bílaleiguflotans. Dacia Duster Extreme kemur á 18” álfelgum og er klæddur að hluta með Micro Cloud efni sem ver helstu grjótkastfleti bílsins. Micro Cloud er í raun bara mjög fínt nafn á plasti sem er 20% endurunnið. Bíllinn er beinskiptur og kemur með fimm mismunandi aksturstillingum fyrir mismunandi akstursskilyrði. Veghæð bílsins er rúmlega 20 cm sem kemur sér vel ef fólk vill reyna fyrir sér í léttum utan vegar akstri. „Ef nýi Dusterinn er borinn saman við forvera sinn, þá lítur út fyrir að bíllinn sé búinn að fara í ræktina. Hann hefur bætt á sig heilmiklu kjöti og gerir það að verkum að hann er orðinn ansi myndarlegur.“ Bíllinn kemur með þriggja sílindra, 1.2 lítra mildri tengiltvinn bensín vél. Þó svo að bíllinn sé tengiltvinn þá er ekki hægt að keyra hann á rafmagninu einu og sér. Bíllinn er með litlum rafmagnsmótor sem gefur honum aðeins meiri snerpu og gerir hann hagkvæmari í rekstri. Þar af leiðandi skilar bíllinn 130 hestöflum og 230 Nm af togi. Bíllinn er talsvert meiri um sig en forveri hans og líkt og hann hafi "farið í ræktina" „Bíllinn verður seint kallaður kraftmikill, en manni finnst hann aldrei vera vélarvana,“ segir James. „Til dæmis ef það þarf að taka fram úr stórum vörubíl þá finnst manni ekki eins að maður sé að leggja líf sitt að veði við að komast fram úr. Bíllinn hefur alltaf mátulegan kraft til að gefa.“ Þar sem að bíllinn finnur sig á flottum stað í verðskala nýrra bíla þá kemur hann ekki með lúxus eins og rafdrifnum skotthlera eða sætum. Engu að síður kemur hann með hita í stýri og framsætum. Hann kemur með 10” skjá og glænýju afþreyingarkerfi sem lætur kerfið í gamla Dacia Dusternum minna á stýrikerfi í Nokia 5110. Einnig er mögulegt að tengja Apple CarPlay og Android Auto við afþreyingarkerfi bílsins. Massíft stýri með hita bætir upp fyrir "ódýrt plast" í innréttingunni að mati Tork gaurs. Hönnunin á innréttingu bílsins er virkilega góð og fer vel með augað. Það ber þó að nefna að maður finnur ágætis magn af “ódýru” plasti í ökumannsrými bílsins segir James. „Það er þó allt fyrirgefið um leið og hendurnar eru settar á stýrið. Það er massíft og virkilega gott viðkomu sem er mikilvægt þar sem að stýrið er sá snerti flötur sem fær mesta notkun.“ Dacia Duster er eiginlega Lada Sport okkar tíma. Lada Sport var lítill jepplingur sem komst allt, og gátu flestir keypt nýja Lödu Sport án þess að fórna fyrir það handlegg. Þetta á líka við um þennan nýja Dacia Duster og það gerir hann að einum hagkvæmasta bíl sem hægt er að kaupa nýjan úr umboði. Fyrir tæplega 6.4 milljónir eignast fólk afbragðs ökutæki sem getur gert allt í hinu almenna umhverfi. Bíllinn er algjörlega laus við alla tilgerð, og gerir nákvæmlega það sem innihalds lýsinginn segir. Á næstu mánuðum munum við sennilega sjá mjög mikið af þessum bílum á götum landsins og munu bílaleigurnar sennilega ver einn helsti markhópurinn fyrir nýja Dusterinn segir James.. „Almenningur gæti samt gert margt vitlausara en það að íhuga kaup þessum ágæta jeppling. Því að fyrir tæplega 6.4 milljónir eignast fólk afbragðs ökutæki sem getur gert allt í hinu almenna umhverfi venjulegs Íslendings.“ Horfa má á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan:
Bílar Tork gaur Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Lífið Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur Leikjavísir Pétur og Elísabet tóku fallegt parhús í 101 í gegn Lífið Fleiri fréttir Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Hátindar Öræfajökuls að vori Áttatíu ára sögu Múmínálfanna fagnað með nýrri línu Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs Geðveikt fjör á Bessastöðum „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Gerum betur og setjum heilsuna í forgang „Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Sannkölluð rokkveisla hjá SIGN í Gamla bíói Aldrei of mikið af G-vítamíni Bóndadagsleikur á Vísi - taktu þátt Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Sjá meira