Menning

Fullt út úr dyrum á sjóð­heitri ljós­mynda­sýningu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Myndlistarkonan og ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir lét sig ekki vanta á opnunina á Listasafni Íslands.
Myndlistarkonan og ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir lét sig ekki vanta á opnunina á Listasafni Íslands. Elísa B. Guðmundsdóttir

Ljósmyndarar landsins flykktust á Listasafn Íslands síðastliðna helgi þar sem sýningin Nánd hversdagsins opnaði við mikið lof gesta. Það var fullt út úr dyrum og mikil stemning.

Sýningin samanstendur af ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orri Jónsson og Sally Mann.

Í fréttatilkynningu segir:

„Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst. 

Sýningin hverfist um þá hugmynd að ákveðin augnablik sé aðeins unnt að fanga með því að ljósmyndarinn byggi upp nánd, eftirtekt og íhygli gagnvart viðfangsefnum sínum yfir langan tíma.

Verkin á sýningunni bera þess glöggt vitni hve vel ljósmyndararnir þekkja þá sem þeir eru að mynda enda er nálgun þeirra þrungin væntumþykju. 

Ljósmyndirnar sýna einnig hve viljugar fyrirsæturnar eru til að taka þátt í hinu listræna ferli. Traustið og skilningurinn sem þar er að verki jaðrar jafnvel stundum við að vera listrænt samstarf.“

Sýningin er í sýningarstjórn Pari Stave en hún er sýningarstjóri Listasafns Íslands.

„Við lifum í heimi sem er skilgreindur af athyglishagkerfinu, þar sem við erum daglega mötuð á flóði mynda sem ætlað er að beina athygli okkar að ritstýrðri upplifun af neyslumenningu, dægurmenningu og félagslegum og pólitískum straumum,“ segir Pari og bætir við: 

„Sífelld nálægð snjalltækja, samfélagsmiðla og annarra stafrænna upplýsinga glepur okkur frá innihaldsríkri þátttöku í hversdagslífinu. Fólk er æ oftar útsett fyrir myndum sem búnar eru til með gervigreind en þær útmá enn frekar mörkin á milli sannleika og svika.

Verkin á sýningunni skapa mótvægi við þennan nýja, tvístraða veruleika. Hér er því haldið fram að tilteknar ljósmyndir sé aðeins mögulegt að skapa með vinnulagi sem einkennist af djúpri athygli, íhugun og persónulegri reynslu. 

Slík augnablik eru gripin úr flaumi hversdagsins, á andartökum þegar djúp tengsl myndast við umhverfið og ná að sameina okkur sem manneskjur.“

Hér má sjá myndir frá opnuninni:

Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarkona brosti breitt.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir grandskoða verkin.Elísa B. Guðmundsdóttir
Feðgarnir Kári Pálsson og Páll Stefánsson ljósmyndari.Elísa B. Guðmundsdóttir
Joakim Eskildsen, Pari Stave og Niall McDiarmid. Joakim og Niall taka báðir þátt í sýningunni og Pari er sýningarstjóri.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir skála og spjalli.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gleði og gaman!Elísa B. Guðmundsdóttir
Pari Stave sýningarstjóri ásamt Ingibjörgu Jóhannsdóttur safnstjóra.Elísa B. Guðmundsdóttir
Þarf alltaf að vera vín!Elísa B. Guðmundsdóttir
Claus Sterneck ásamt Eggerti Péturssyni myndlistarmanni.Elísa B. Guðmundsdóttir
Agnieszka Sosnowska, ein þeirra sem tekur þátt í sýningunni.Elísa B. Guðmundsdóttir
Það var margt um manninn á safninu!Elísa B. Guðmundsdóttir
Ljósmyndararnir Spessi og RAX létu sig ekki vanta.Elísa B. Guðmundsdóttir
Pop- up ljósmyndabókamarkaður var haldinn á verkstæðinu á vegum ljósmyndahátíðar, samhlliða opnun sýningarinnar.Elísa B. Guðmundsdóttir
Orri Jónsson, einn ljósmyndaranna sem tekur þátt í Nánd hversdagsins.Elísa B. Guðmundsdóttir
Glaðir gestir!Elísa B. Guðmundsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands ásamt Loga Einarssyni Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem opnaði sýninguna formlega.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gísli Björnsson skemmti sér vel!Elísa B. Guðmundsdóttir
Karl Óskarsson, ljósmyndari og kvikmyndatökumaður.Elísa B. Guðmundsdóttir
Myndlistarkonan og ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.