Fótbolti

„Held ég hafi þurft á því að halda“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir er nýr landsliðsþjálfari Belgíu.
Elísabet Gunnarsdóttir er nýr landsliðsþjálfari Belgíu.

Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðs Belgíu í fótbolta. Hún segist vera bæði spennt fyrir starfinu og stolt af því að hafa fengið kallið.

Samningur hennar við belgíska sambandið gildir fram í júlí 2027. Elísabet hefur verið án starfs síðan hún hætti sem þjálfari Kristianstad í Svíþjóð eftir tímabilið 2023, eftir fimmtán ár í því starfi. Áður gerði Elísabet, sem er 48 ára gömul, þjálfari Val að Íslandsmeisturum fjórum sinnum.

Smá smeyk að færa sig yfir í landsliðsboltann

„Eftir á þegar maður horfir til baka þá hefur þetta verið ótrúlega gott ár fyrir mig. Ég er búin að hvíla mig vel og hugsa vel um sjálfan mig. Ég held ég hafi þurft á því að halda. Það sem ég hef verið að hræðast mest í minni ákvörðun hvort ég ætti að halda áfram á braut félagsliðanna eða þróa vængina með landsliði. Ég held að þetta verði öðruvísi en ótrúlega gaman. Ég er ótrúlega stolt og ánægð með þetta tækifæri,“ segir Elísabet í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi.

Elísabet hefur undanfarna mánuði verið orðuð við ýmis lið, meðal annars Chelsea og Aston Villa.

„Ég hef alveg verið í einhverjum viðtölum við bæði félagslið og landslið áður en ég tók þessa ákvörðun en um leið og ég fór að ræða við Belgíu og eiga fundið með þeim þá fannst mér þetta bara smellpassa.“

Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA. Liðið verður meðal þátttökuþjóða á EM í sumar líkt og Ísland. Belgar eru í riðli með Portúgölum, Ítölum og heimsmeisturum Spánverja.

„Það kemur í ljós þegar nær dregur hverjar væntingarnar eru en sambandið er með skýr markmið um að lyfta liðinu ofar og það eru alveg klárlega vísbendingar innan hópsins að það sé hægt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×