Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2025 06:32 Ruben Amorim var mjög reiður eftir tap Manchester United á móti Brighton and Hove Albion á Old Trafford. Getty/Martin Rickett Ruben Amorim, yfirþjálfari Manchester United, fékk alveg nóg eftir tap liðsins á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Það gekk mikið á hjá honum í búningsklefanum eftir leikinn.
Það sást vel á blaðamannafundi eftir leik að Portúgalinn var mjög pirraður eftir þetta 3-1 tap á móti Brighton en þetta var sjöunda tap liðsins í fimmtán leikjum undir hans stjórn. Liðið hafði staðið sig vel á móti Liverpool og Arsenal en í þessum leik við Brighton var lítið að frétta og gestirnir voru miklu betri. Amorim gagnrýndi liðið sitt harðlega fyrir framan myndavélarnar en nú berast fréttir af því sem gekk á inn í klefa. Hann sagði fyrir framan fjölmiðlamenn að liðið í dag væri kannski það lélegasta í sögu Manchester United. The Athletic segir frá því að Amorim hafi tekið brjálæðiskast í búningsklefa liðsins strax eftir leikinn. Leikmennirnir fengu heldur betur að heyra það frá þjálfara sínum sem braut meðal annars sjónvarp í klefanum sem er vanalega notað til að fara yfir taktík. Í fréttinni kemur fram að brjálæðiskastið hafi komið leikmönnum mikið á óvart ekki síst þar sem Portúgalinn er ekki vanur að tala við liðið strax eftir leiki. Hann hefur hingað til beðið með það þar til á fundi daginn eftir. Ensku blaðamennirnir voru fljótir að rifja upp hinn fræga hárblásara sem Sir Alex Ferguson var þekktur fyrir. Ef eitthvað er að marka þann samanburð þá ætti þetta að boða gott. View this post on Instagram A post shared by The Athletic | Football (@theathleticfc)
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira