Viðskipti innlent

Hættir sem rit­stjóri Bænda­blaðsins

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur starfað hjá Bændablaðinu síðustu tíu árin. Hún segist nú langa að breyta um takt.
Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur starfað hjá Bændablaðinu síðustu tíu árin. Hún segist nú langa að breyta um takt. Bændablaðið

Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Bændablaðsins. 

Frá þessu greinir Guðrún Hulda í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún segist hafa sagt upp fyrir áramót. Hún tók við ritstjórn á vordögum 2022, eftir að hafa þá starfað hjá Bændasamtökunum og blaðið í sjö ár. Hún segist munu vinna ötullega og af heilindum fyrir blaðið þar til að ný manneskja taki við keflinu á næstu mánuðum.

Í færslunni segist hún hafa fengið öruggt starfsumhverfi hjá Bændasamtökunum og sömuleiðis rými til að blómstra.

„Ég hef unnið eftir ákveðinni sýn og markmiðum sem fólust í því að stuðla að skilvirkara verklagi í innri starfsemi blaðsins, efla innihaldið með metnaðarfullri blaðamennsku og viðhalda styrk Bændablaðsins sem traustur þekkingarbrunni. Á þessum tíma hefur lestur blaðsins aukist, sér í lagi meðal yngri lesenda, og umferð um vefinn okkar og samfélagsmiðla hefur margfaldast. Þetta hefur blaðinu tekist vegna þess að hjá því starfa eintómir erkisnillingar sem leggja sig alltaf öll fram við að skapa stórkostlegan miðil í nærandi vinnuumhverfi. Þvílík eru forréttindi mín að fá að taka þátt í mótun Bændablaðsins og vinna með mínu allra besta samstarfsfólki, sem er mér sem fjölskylda.

En nú langar mig að breyta um takt og sjá hvert það leiðir mig. Markmiðið er að skapa mér líf þar sem ég hef meiri tíma fyrir fólkið mitt, vini, tónlist, hreyfingu, ætigarðinn, hrossin og einhver önnur uppátæki sem kunna að reka á fjörur mínar. Ég mun vinna ötullega og af heilindum fyrir Bændablaðið þar til ný manneskja tekur við keflinu á næstu mánuðum,“ segir Guðrún Hulda.

Guðrún Hulda tók á sínum tíma við ritstjórn Bændablaðsins af Herði Kristjánssyni, en áður hafði hún starfað sem blaðamaður og auglýsingastjóri Bændablaðsins og umsjónarmaður Hlöðunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×