Barn meðal látinna í rútuslysi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. desember 2024 11:59 Viðbragðsaðilar á vettvangi rútuslyssins. AP/Marius Birkeland Þrír létust í rútuslysi í Noregi, þar á meðal eitt barn en ekki hefur verið borið kennsl á þá látnu. Ellefu manns voru fluttir á sjúkrahús.
Sextíu manns voru í rútu þegar hún rann af veginum í Hadsel í norðurhluta Noregs í gær. Þrír einstaklingar hafa verið úrskurðaðir látnir, barn og tvær konur. Önnur konan var á þrítugsaldri en hin á fimmtugsaldri. Barnið var á milli tíu og tólf ára. Lögregla hefur enn ekki borið kennsl á þá látnu. Í frétt NRK kemur fram að ellefu manns voru fluttir á sjúkrahús en voru þeir allir með minniháttar meiðsli. Einn þeirra hefur núþegar verið útskrifaður. Rútan var á ferð frá Narvik til Svolvær þegar hún rann af veginum og hafnaði utan vegar nálægt vatni. Rútan var á leið frá Narvik til Svolvær þegar slysið átti sér stað.Vísir/Hjalti Þónokkrir einstaklingar sem voru í rútunni eru ferðamenn, meðal annars frá Kína, Singapore, Indlandi, Malasíu og Hollandi. Leita í vatninu Unnið var í alla nótt til að ná rútunni aftur upp á veginn. Það hafðist að ganga fjögur í nótt á norskum tíma. Rannsóknarnefnd slysa í Noregi mun síðan rannsaka slysið og aðdraganda þess. Lögreglan og aðrir viðbragðsaðilar leita við vatnið þar sem slysið átti sér stað. Engar vísbendingar gefa til kynna að einhver farþegi hafi lent í vatninu. Leitað sé til að vera alveg viss um að engan vanti en einnig til að finna farangur farþeganna.
Noregur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira