Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. desember 2024 16:01 Dion Duff, Georg Leite, Hilmar Gunnarsson og Jökull Júlíusson héldu Rauð jól saman. Aðsend Jökull Júlíusson í Kaleo heldur í þá hefð að eyða jólunum alltaf á Íslandi. Hann stóð fyrir góðgerðarviðburðinum Rauðu jólin í Hlégarði, Mosfellsbæ síðastliðinn fimmtudag.
Hugmyndin að Rauðu Jólunum spratt upp út frá frá jólaboði sem Jökull hefur haldið árlega með fjölskyldu sinni og nánustu vinum. „Ég hef haldið í það að vera á Íslandi um jólin. Verandi á ferðinni stóran hluta ársins, þá er svo mikilvægt að koma fólki saman í þægilegu umhverfi og gera eitthvað skemmtilegt. Svo þróast þessi árlegi hittingur í Rauðu Jólin, þar sem markmiðið er að gefa til baka og nýta þennan mikilvæga tíma með sínu fólki,“ segir Jökull. Markmið Rauðu jólanna er að safna fyrir góðum málstað og í ár rennur allur ágóði til Krabbameinsfélags Íslands. Haldið var uppboð og veglegir hlutir frá styrktaraðilum voru boðnir út. „Í ár vorum við með frábæra styrktaraðila. Við buðum upp á fljótandi veigar úr nýja samstarfi mínu við vínfélagið Maison Wessman og við Kalda. Þráinn stjörnukokkur á ÓX og Sumac sá um matinn fyrir gesti. Aðalatriðið var svo uppboð sem var stútfullt af frábærum hlutum frá styrktaraðilum og söfnuðum við dágóðri upphæð þar. Auk þess fer allur ágóði af miðasölu og barnum til Krabbameinsfélagsins líka. Allt þetta kemur frá löngum lista styrktaraðila sem við erum hrikalega þakklát fyrir,“ segir Jökull og bætir við að það sé mikilvægt að hafa þetta létt og heimilislegt. Glæsilega parið Jökull og Thelma fyrir miðju ásamt fjölskyldu.Aðsend „Við viljum ekki hafa þetta stíft, við vorum því með sérstök verðlaun fyrir ljótustu jólapeysuna. Jólapeysan er hefð sem ég rígheld í, þó ég sé spurður á hverju ári hvort þetta sé grín.“ Ýmsir skemmtikraftar stigu á stokk og má meðal annars nefna Elínu Ey og Júníus Meyvant, ásamt Jökli sjálfum. „Þetta var frábært kvöld og hlökkum við mikið til að taka þetta enn þá lengra á næsta ári. Sérstakar þakkir á Hlégarð, Mosfelling og Hilmar Gunnarsson fyrir aðstöðuna í Hlégarði og umgjörð,“ segir Jökull að lokum. Hér má sjá myndir frá viðburðinum: Jólapeysurnar fengu að njóta sín!Aðsend Flottir með hattana.Aðsend Jökull tók vel valin lög.Aðsend Jólapeysustrákar.Aðsend Rauði liturinn var ríkjandi.Aðsend Forsvarsmenn Rauðu jólanna léku listir sínar á sviði.Aðsend Elín Ey tók lagið og er hér ásamt Anaïs Barthe.Aðsend Glæsilegar með jólasveinahúfu.Aðsend Mikil gleði og mjög smart jólapeysur!Aðsend Jökull og Júníus Meyvant.Aðsend Jólapeysan er alltaf ákveðin stemningsflík.Aðsend Hjörleifur Davíðsson og Elínborg.Aðsend Kaleo húðflúr!Aðsend Jökull og Júníus í jólagírnum!Aðsend Garðar og Fanney í jólagír.Aðsend Jóla jóla.Aðsend Hundurinn Ceasar var í góðu stuði.Aðsend Hjónin Georg hjá Kalda og Anaïs Barthe rokkuðu alvöru jólapeysur!Aðsend
Samkvæmislífið Jól Mest lesið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Lífið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Lífið Einn frægasti krókódíll í heimi allur Lífið Límdi fyrir munninn á öllum við borðið Lífið Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Lífið Fleiri fréttir Hafi ekki tekið þátt í herferð gegn Lively Einn frægasti krókódíll í heimi allur Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Límdi fyrir munninn á öllum við borðið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Frægir fundu ástina 2024 „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni „Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“ Eitt fallegasta hús landsins sem Duna Laxness ólst upp í Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Barst með snjóflóði út í sjó og fékk hjartaáfall á tíu metra dýpi Hefðum við átt að sjá framboð Höllu Hrundar fyrir strax í febrúar? Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði Sjá meira