Körfubolti

Körfu­bolta­kvöld í beinni frá Minigarðinum

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir í Körfuboltakvöldi eru oft á ferðinni og verða í Minigarðinum í kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Strákarnir í Körfuboltakvöldi eru oft á ferðinni og verða í Minigarðinum í kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. vísir/Anton

Áhugafólk um Bónus-deild karla í körfubolta getur mætt og gert sér glaðan dag í Minigarðinum í kvöld en þar verður fyrri hluti deildarinnar gerður upp með skemmtilegum hætti, í Bónus Körfuboltakvöldi.

Þessi veglegi uppgjörsþáttur verður sem sagt í beinni útsendingu frá Minigarðinum og hefst útsending um klukkan 21 á Stöð 2 Sport, eða strax eftir leik Íslandsmeistara Vals við Tindastól, og er öllum velkomið að mæta í Skútuvoginn á meðan húsrúm leyfir.

Veitt verða verðlaun fyrir þá sem hafa skarað fram úr í fyrri ellefu umferðum Bónus-deildarinnar, en sérfræðingar Körfuboltakvölds hafa valið besta leikmanninn, besta þjálfarann og úrvalslið fyrri hlutans.

Það er um margt að ræða í Körfuboltakvöldi enda deildin æsispennandi og liðin búin að vera dugleg við að styrkja sig með spennandi leikmönnum. 

Eftir leikinn í kvöld tekur við stutt jólafrí og verður þráðurinn tekinn upp að nýju í deildinni þann 2. janúar.

Leikur Vals og Tindastóls hefst klukkan 19:30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Bónus Körfuboltakvöld tekur svo við í kjölfarið, um klukkan 21, í beinni útsendingu frá Minigarðinum í Skútuvogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×