Körfubolti

„Stundum svo­lítið ó­sann­gjarnt að vera at­vinnu­maður í körfu­bolta“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Álftanes leikur gegn Hetti í deildinni annað kvöld. Justin James ætti að vera klár í einhverjar mínútur.
Álftanes leikur gegn Hetti í deildinni annað kvöld. Justin James ætti að vera klár í einhverjar mínútur.

Nýr leikmaður Álftnesinga í Bónus deild karla í körfubolta hefur spilað yfir sjötíu leiki í NBA-deildinni. Hann var valinn númer 40 í nýliðavalinu af Sacramento Kings árið 2019.

Bandaríkjamaðurinn Andrew Jones hefur sagt skilið við liðið og spilar því ekki fleiri leiki í búningi Álftaness. Í stað hans er kominn öflugur leikmaður Justin James sem á að baki tvö tímabil í NBA deildinni.

„Við förum á leikmannamarkaðinn og könnum hvernig viðrar þar og sjáum í hvaða átt vindurinn blæs. Upp úr því öllu saman kemur þessi hugmynd að kanna hvort þetta væri möguleiki með Justin James,“ segir Kjartan Atli Kjartansson þjálfari Álftnesinga í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi.

Traust og tengsl sem létu málin ganga upp

„Þetta snýst svolítið mikið um traust og einhver tengsl. Umboðsmaður Justins er sá sami og er með Eric Ayala sem lék undir stjórn Hjalta Vilhjálmssonar hjá Keflavík. Þetta kemur í rauninni þaðan að það var traust á milli. Þarna var leikmaður sem var búinn að vera svolítið frá vegna meiðsla. Það er liðið eitt og hálft ár síðan hann spilaði leik og hann þurfti að komast eitthvert þar sem það væri traust á milli og okkar hlutverk verður að koma honum svolítið af stað. Það verða okkar skyldur gagnvart honum á meðan verða það hans skyldur að koma og falla inn í liðið og falla inn í leikstílinn sem við viljum spila.“

Kjartan segir að Justin James hafi tekið fyrstu æfinguna með Álftnesingum á mánudaginn.

„Það er stundum svolítið ósanngjarnt að vera atvinnumaður í körfubolta. Hann til að mynda lendir á mánudagsmorgninum. Það verður smá töf á fluginu og það seinkast allt. Það var síðan slæm færð og hann var því kominn seint á dvalarstað sinn. Svo vaknar hann, keyrður á æfingu og borðar eitthvað smá rétt fyrir æfingu. Hann var bara mjög flottur á æfingunni eins og við var að búast. En eftir ferðalag þá fórum við líka frekar varlega með hann. Við eigum síðan bara eftir að sjá hvernig þetta þróast.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×