Fótbolti

Bleikur Lamine Yamal kynnti nýju skóna sína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lamine Yamal kann greinilega vel við sig í bleiku. Menn verða líka varla bleikari en þetta.
Lamine Yamal kann greinilega vel við sig í bleiku. Menn verða líka varla bleikari en þetta. @lamineyamal

Spænska undrabarnið Lamine Yamal tékkaði i enn eitt boxið í vikunni þegar nýir skór sérhannaðir í hans nafni voru settir á markað.

Besti ungi leikmaður síðasta Evrópumóts og besti ungi leikmaður ársins á verðlaunahátíð Ballon d'Or hefur svo sannarlega átt magnað ár.

Þessi sautján ára strákur vann sig inn í byrjunarlið Barcelona, stóð sig frábæralega þar og varð svo lykilmaður þegar Spánverjar tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn síðasta sumar.

Hann er að flestum talinn vera ein af framtíðarstórstjörnum fótboltans og meira að segja Lionel Messi sér sjálfan sig í honum. Það kemur því ekki á óvart að íþróttavöruframleiðendur hafi sýnt honum áhuga.

Lamine Yamal kynnti skóna sína í gær og var þar bleikur frá toppi til táar í myndatökunni. Það var ekki að ástæðulausu, því nýju skórnir hans eru bleikir.

Skórnir bera nafnið F50 LY304 og eru hannaðir af Adidas. Það er samt ekki endalaust til af þeim því aðeins 304 pör fóru í framleiðslu. Hætt við því að það verði barist um þessa skó.

Skórnir halda upp á þetta magnaða ár stráksins en auk afreka sinna inn á fótboltanum þá var strákurinn einnig að klára gagnfræðaskólann á árinu. Hann er náttúrulega bara nýorðin sautján ára.

Myndirnar voru samt örugglega teknar áður en hann meiddist á ökkla um síðustu helgi. Yamal spilar vegna þeirra ekki aftur með Barcelona fyrr en á næsta ári og missir því af toppslagnum á móti Atletico Madrid um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×