Menning

Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir ræddi meðal annars rithöfundarferilinn við Heimi Má.
Katrín Jakobsdóttir ræddi meðal annars rithöfundarferilinn við Heimi Má. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands segir að hún og Ragnar Jónasson hafi fengið margar áskoranir um að skrifa framhald af glæpasögunni Reykjavík. Hún segist ekki myndu geta látið myrða pólitíska andstæðinga sína í mögulegum skáldverkum og segist aðallega vera að huga að endurminningum.

Þetta er meðal þess sem fram kom í Samtalinu með Heimi Má sem sýnt var í gærkvöldi. Um er að ræða hennar fyrsta viðtal eftir að hún steig til hliðar sem forsætisráðherra og bauð sig fram í forsetakosningum fyrr á þessu ári.

Klippa: Katrín Jakobsdóttir um höfundarstörfin í Samtalinu

Hefur verið að skrifa

Í Samtalinu spyr Heimir Katrínu að því hvort hún sé ekki farin að huga að því að leita í eigin reynslu og skrifa skáldsögu. Jafnvel pólitískan thriller eða morðsögu?

„Úr því að þú spyrð þá hef ég alveg verið að skrifa. Reyndar ekki skáldskap, heldur hef ég nú verið aðeins að rifja upp pólitískar minningar. Því ég sit uppi með það að ég er með skjöl á þremur brettum í Þjóðskjalasafninu sem ég er að grysja núna.“

Katrín bætir því við að hún sé reyndar eiginlega ekkert að grysja þau, þetta hafi gengið allt of hægt og það tekið mun meiri tíma en hún hafi átt von á. Hún sé ekkert sérlega vinsæl á safninu fyrir vikið. Katrín segir þar um að ræða skrif sem hún ætli sér ekki endilega að birta, þetta sé fyrst og fremst fyrir hana sjálfa og strákana hennar.

Þú ert að gera upp þennan tíma á meðan þú manst hann?

„Já minnið er nefnilega mjög brigðult. Ég er aðeins að vinna úr þessu. Þetta eru náttúrulega ótrúlegir tímar sem maður hefur lifað. Ég veit ekkert hvort þetta kemur út.“

Gæti vel gert framhald af Reykjavík

Þá spyr Heimir Katrínu að því hvort það blundi ekkert í henni að skrifa um morð í fjármálaráðuneytinu sem dæmi. Eða búa til persónu líkt og Erlend í bókum Arnalds eða góða konu sem leysir málin og vísar til þess að Katrín hafi skrifað glæpasöguna Reykjavík með Ragnari Jónassyni sem kom út árið 2022.

„Það eru náttúrulega allir að skrifa glæpasögur. Ég var að skoða Bókatíðindi, mér sýnist þetta vera mjög mikið af glæpasögum,“ segir Katrín. „En við Ragnar erum búin að fá margar áskoranir um að skrifa framhald. Það getur vel verið að við gerum það, við erum alveg með hugmyndir.“

Þú gætir fengið útrás fyrir að drepa fyrrverandi pólitíska andstæðinga þína í bók?

„En þá fara allir að þekkja þá þegar þeir mæta,“ segir Katrín hlæjandi. „Menn sem líta út eins og Bjarni og Sigurður Ingi og eru drepnir hræðilega. Heldurðu að þetta væri nú gott?“ segir hún á léttum nótum í Samtalinu.

Viðtalið í heild sinni má horfa á hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Grautfúl að tapa forsetakosningunum

Katrín Jakobsdóttir segist hafa orðið grautfúl eftir að hafa tapað forsetakosningunum því hún hafi að sjálfsögðu farið í þær til að vinna kosningarnar. Í Samtalinu með Heimi Má á Stöð 2 í kvöld segist hún hafa fundið til djúprar sorgar þegar Vinstri græn félllu af þingi í nýafstöðnum alþingiskosningum.

Upp­lifði djúpa sorg þegar Vinstri græn duttu af þingi

Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi veitti sitt fyrsta viðtal eftir forseta- og alþingiskosningar í Samtalinu hjá Heimi Má í dag sem sýnt verður á Stöð 2 klukkan 19:05 í kvöld. Hún segist hafa upplifað djúpa sorg þegar úrslit nýafstaðinna alþingiskosninga lágu fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.