Enski boltinn

Alisson á sömu ósk og svo margir stuðnings­menn Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mohamed Salah og Alisson Becker breyttu miklu fyrir Liverpool þegar þeir komu til félagsins á sínum tíma.
Mohamed Salah og Alisson Becker breyttu miklu fyrir Liverpool þegar þeir komu til félagsins á sínum tíma. Getty/Andrew Powell

Alisson Becker snéri aftur í Liverpool markið í Meistaradeildinni í vikunni og var besti einn maður vallarins þegar liðið vann 1-0 sigur á Girona.

Það er fátt talað um meira í kringum Liverpool þessa dagana en framtíð Mohamed Salah hjá félaginu. Salah hefur verið frábær á leiktíðinni en er að renna út á samning í sumar eins og flestir vita.

Einn af þeim sem á þá ósk að Egyptinn verði áfram er brasilíski markvörðurinn.

„Við viljum allir að hann framlengi samninginn sinn og verði áfram hjá félaginu,“ sagði Alisson eftir sigurleikinn á Girona.

Salag er kominn með sextán mörk og tólf stoðsendingar í 22 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Alisson segist ekkert sjá þá á Salah sjálfum að framtíðin sé óráðin.

„Hann er mjög rólegur yfir þessu. Hann lætur ekki svona hluti hafa áhrif á sig. Hann er sterkur andlega og er með einbeitinguna á sín markmið,“ sagði Alisson. ESPN segir frá.

„Það mikilvægast er að við höldum áfram því sem við höfum verið að gera. Við áttum ekki frábæran leik á móti Girona. Við vitum vel að við getum gert mun betur en þetta var nóg til að taka öll þrjú stigin og halda sigurgöngunni áfram,“ sagði Alisson.

„Við vitum hvað það er mikilvægt að ná einu af átta efstu sætunum í Meistaradeildinni. Við erum einbeittir á það markmið,“ sagði Alisson. Hann var að leika sinn fyrsta leik síðan hann meiddist í byrjun október.

„Ég vildi fá að spila nokkra leiki áður en lykilhluti tímabilsins hefst. Það eru mikilvægir leikir fram undan. Mikilvægast er ég sé kominn í mitt besta form þegar það skipti mestu máli í ensku úrvalsdeildinni í janúar svo ég get skilað mínu besta þá,“ sagði Alisson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×