Fótbolti

Gekk á hnjánum yfir allan völlinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thiago Silva er mjög trúaður og það sáu menn þegar hann spilaði í Evrópu. Hann þakkaði guði fyrir úrslit helgarinnar og gerði það á mjög sérstakan hátt.
Thiago Silva er mjög trúaður og það sáu menn þegar hann spilaði í Evrópu. Hann þakkaði guði fyrir úrslit helgarinnar og gerði það á mjög sérstakan hátt. Getty/Richard Ducker

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Thiago Silva er kominn heim til Brasilíu eftir fimmtán ár í Evrópu og hann hjálpaði liði sinu að halda sæti sínu í brasilísku deildinni um helgina.

Hinn fertugi Silva og félagar hans í Fluminense náðu þá að vinna Palmeiras 1-0 í lokaleik tímabilsins. Þau úrslit nægðu liðinu til að fá að spila áfram í deildinni á næsta ári.

Það hefur þó vaktið athygli hvað fyrrum Chelsea maðurinn tók upp á að gera eftir leikinn.

Thiago Silva gekk þá á hnjánum yfir allan völlinn. Fluminense sýndi myndband með kappanum á miðlum sínum. Hann var með þessu að þakka guði sínum fyrir úrslitin og þá staðreynd að liðið hélt sér í deildinni.

Fleiri brasilískir knattspyrnumenn hafa gert þetta þar á meðal Raphinha eftir að hann vann spænska meistaratitilinn með Barcelona.

Silva talaði um það árið 2020 að hann dreymdi um að klára ferilinn með Fluminense. Hann var þá hjá PSG en átti síðan eftir að spila nokkur ár með Chelsea.

Í viðtali við Globo eftir leikinn þá var Silva mjög tilfinningasamur.

„Þetta hafa verið erfiðir sex mánuðir. Með þessum sigri þá erum við lausir við mikil þyngsli af okkar herðum. Ég sagði eftir leikinn á móti Cuiaba að við þyrftum bara að treysta á okkur sjálfa,“ sagði Thiago Silva.

„Hræðsla er hluti af okkar lífi en hugrekki okkar var sterkara en óttinn. Við verðum að þakka guði fyrir það af því að þetta var mjög flókið ár, sex erfiðir mánuðir. Nú skil ég betur vegferðina og af hverju ég þurfti að koma hingað. Það var mitt val og ég sé ekki eftir neinu sem ég hef gert hingað til,“ sagði Silva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×