Lífið

Keypti fyrstu í­búðina 21 árs og reif allt út

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kjartan Helgi festi kaup á sinni fyrstu íbúð fyrir skemmstu.
Kjartan Helgi festi kaup á sinni fyrstu íbúð fyrir skemmstu.

Í nýjasta, og jafntfram síðasta þætti af fimmtu þáttaröð, af Skreytum hús heimsækir Soffía Dögg Garðarsdóttir Kjartan Helga sem festi nýverið kaup á sinni fyrstu íbúð í Ljósheimum í Reykjavík.

Íbúðin var komin til ára sinna og hafði Kjartan Helgi rifið allt út og óskaði eftir aðstoð Soffíu Daggar við að endurgangsetja stofuna. Hann óskaði eftir notalegu og hlýlegu stofurými. 

Þættirnir eru sex rétt eins og í hinum þáttaröðunum og eru aðgengilegir á Vísi og Stöð2+.

Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan:

Smart og hlýlegt

„Eins og alltaf þá er fyrsta vers að velja inn rétta litinn. Þar sem við erum með tekkvegg þá var hann það mikilvægasta í vali litarins að finna einhvern sem harmoneraði vel með honum, og kannski dró aðeins niður appelsínugula litinn,“ segir Soffía Dögg í nýjustu færslu þáttanna.

Soffía byrjaði á að mála rýmið, setja lista, leggja parket og setja upp eldhúsinnréttingu. Þá var komið að því að inrétta stofuna. Þá valdi Soffía sófa og borðstofuhúsgögn í ljósum og hlýlegum litatónum. Á veggina blandaði hún saman myndum og vegghillum sem ramma stofuna inn á skemmtilegan máta.

„Þetta er nefnilega sniðug lausn, að þegar þið eigið ekki stór málverk eða slíkt – þá er snilld að gera grúbbur á veggi.“ 

„Mottan þótti mér smellpassa þarna inn og svörtu línurnar einmitt það sem þurfti til þess að brjóta hana aðeins upp og gera áhugaverðari. Eins er hún að tala svo vel við púðana í sófanum.“


Tengdar fréttir

Hlýlegt sjónvarpsherbergi með vínbar í Garðabæ

Í nýjasta þætti af Skreytum hús heimsækir Soffía Dögg Garðarsdóttir, þáttastjórnandi þáttanna, þau Daníel Andra Pétursson og Hildi Sif Ingadóttur og syni þeirra tvo sem eru nýlega flutt inn í fallegt raðhús í Urriðaholti. 

Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss

Í fjórða þætti af fimmtu þáttaröð af Skreytum hús, fá áhorfendur að fylgjast með breytingu á svefnherbergi við Langholtveg. Soffía Dögg Garðarsdóttir heimsótti Helenu Levisdóttur, sem óskaði eftir gera herbergið hlýlegt.

Frelsaði húsgögn Brynhildar

Í nýjasta þætti af Skreytum hús fékk Soffía Dögg Garðarsdóttir það skemmtilega verkefni að aðstoða Brynhildi við að taka stofuna hennar í gegn.

Fegurðardrottning fékk nýtt herbergi

Í fyrsta þætti af fimmtu þáttaröð af Skreytum hús, sem er í umsjón Soffíu Daggar Garðarsdóttur, heimsótti hún mæðgurnar, Emilíu Þóru Ólafsdóttur og Írisi Kristinsdóttur, gjarnan kennd við Buttercup, sem eru nýlega fluttar á Álftanes úr Grindavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.