Fimmtíuogsex stig Jókersins fóru til spillis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2024 12:33 Nikola Jokic hefur sennilega verið besti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur. Gengi Denver Nuggets hefur hins vegar ekki verið neitt spes. getty/Patrick Smith Nikola Jokic setti persónulegt stigamet þegar Denver Nuggets tapaði fyrir Washington Wizards, 122-113, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Jokic skoraði 56 stig en þau fóru til spillis gegn liði sem hafði tapað sextán leikjum í röð þegar að viðureigninni í nótt kom. Auk þess skora 56 stig tók Jokic sextán fráköst og gaf átta stoðsendingar. Jamal Murray og Aaron Gordon voru fjarri góðu gamni hjá Denver og því þurfti Jokic að taka enn meira til sín en vanalega. Hann tók 38 skot í leiknum, þar af tuttugu í 3. leikhluta þar sem hann skoraði 23 stig. Mike Malone, þjálfari Denver, tók sökina á sig eftir leikinn. Denver er í 9. sæti Vesturdeildarinnar með ellefu sigra og tíu töp. „Ég er að gera virkilega slæma hluti með þetta lið. Að vera með 11-10 árangur og tapa og fá á okkur 122 stig gegn liði sem hafði skorað hundrað stig að meðaltali í síðustu fimm leikjum er vandræðalegt,“ sagði Malone hreinskilinn. Jordan Poole skoraði 39 stig fyrir Washington sem hafði ekki unnið síðan 30. október áður en leiknum í nótt kom. Jokic hefur spilað stórkostlega fyrir Denver á tímabilinu. Hann er þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar með 31,4 stig, sá frákastahæsti (13,6) og næststoðsendingahæsti (10,3).
NBA Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira