Körfubolti

Jokic fór upp fyrir Magic John­son í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikola Jokic er með þrennu að meðaltali í leik á þessu tímabili með Denver Nuggets en hann er með 29,9 stig, 13,4 fraköst og 10,4 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Nikola Jokic er með þrennu að meðaltali í leik á þessu tímabili með Denver Nuggets en hann er með 29,9 stig, 13,4 fraköst og 10,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Getty/Ronald Martinez

Nikola Jokic hjá Denver Nuggets komst í nótt upp fyrir Magic Johnson á listanum yfir flestar þrennur í sögu NBA deildarinnar í körfubolta.

Jokic var þá með 27 stig, 20 fráköst og 11 stoðsendingar í tapi Denver á móti Cleveland Cavaliers.

Þetta var 139. þrenna Jokic á NBA ferlinum.

Nú eru aðeins liðsfélagi hans Russell Westbrook (200) og Oscar Robertson (181) ofar en hann á listanum.

Jokic náði þrennunni í fjórða leikhlutanum þegar hann gaf sína tíundu stoðsendingu í leiknum.

Magic Johnson var með 138 þrennur í 906 leikjum frá 1979 til 1996. Hann lék reyndar ekkert frá 1991 til 1995 eftir að hann greindist með HIV veiruna.

Jokic náði þessari 139. þrennu sinni í leik númer 692 í deildinni.

Magic er eins og áður sagði í fjórða sætinu en LeBron James er fimmti með 118 þrennur eða tuttugu færri. Jason Kidd er sjötti og síðasti leikmaðurinn sem hefur náð hundrað þrennum en hann var með 107 á sínum ferli.

Luka Dončić og James Harden eru báðir með 78 þrennur til þessa og næstir því að komast í hundrað þrennu af þeim sem eru að spila í deildinni í dag.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×