Sport

NFL varar leik­menn deildarinnar við glæpa­hópum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrick Mahomes og Travis Kelce spila með Kansas City Chiefs og allir leikir liðsins eru sýndir beint.
Patrick Mahomes og Travis Kelce spila með Kansas City Chiefs og allir leikir liðsins eru sýndir beint. Getty/Michael Reaves

NFL deildin hefur sent út viðvörun vegna þess að þjófahópar hafa nú mikinn og aukinn áhuga á því að komast yfir eignir leikmanna NFL liðanna. Þeir nota taktík sem við þekkjum vel úr evrópska fótboltanum.

Þetta kemur í kjölfarið á því að brotist var inn með stuttu millibili á heimili Kansas City Chiefs stórstjarnanna Patrick Mahomes og Travis Kelce.

Associated Press komst yfir minnisblað þar sem koma fram upplýsingar að mikil aukning sé á því að glæpahópar herji á þjóðþekktar íþróttastjörnur í Bandaríkjunum. ESPN segir frá.

Þetta er þekkt úr ensku og spænsku fótboltadeildunum þar sem þjófahóparnir láta til skarar skríða þegar þeir vita að leikmennirnir eru að spila sína leiki. Leikirnir eru auðvitað í beinni í sjónvarpi og glæpahóparnir vita því nákvæmlega hvar fórnarlömb þeirra eru niðurkomin.

Ættingjar og heimilisfólk eru auk þess oftast mætt á leikina líka og því vanalega enginn heima á meðan.

Leikmenn eru líka varaðir við því að gefa upp á samfélagsmiðlum hvað þeir séu að gera fyrr en dagurinn er afstaðinn. Það gefur þjófahópnunm tækifæri á að skipuleggja sig í kringum ferðir þeirra

Brotist var inn hjá Mahomes og Kelce með aðeins nokkra daga millibili. Innbrotin urðu fyrir og á deginum sem Kansas City var að spila á heimavelli á móti New Orleans Saints 7. október síðastliðinn. Kærasta Kelce, Taylor Swift, var í stúkunni á þeim leik.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×