Fótbolti

Jóhann Berg um Aron Einar: Ég veit hvernig honum líður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson eru í leiðtogahlutverkum hjá íslenska landsliðinu.
Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson eru í leiðtogahlutverkum hjá íslenska landsliðinu. Getty/Jose Breton/Harry Langer

Jóhann Berg Guðmundsson er aftur tekinn við fyrirliðabandi íslenska karlalandsliðsins eftir að Aron Einar Gunnarsson meiddist snemma í leik Íslands úti í Svartfjallalandi.

Jóhann Berg var því mættur á blaðamannafund Íslands fyrir leikinn mikilvæga á móti Wales annað kvöld og var spurður út í hvaða áhrif fjarvera Arons hafi á íslenska hópinn.

Hversu slæmt er að vera án Arons Einars á móti Wales?.

„Það er mjög slæmt og leiðinlegt fyrir hann aðallega að hafa lent í þessu,“ sagði Jóhann Berg.

„Ég veit hvernig honum líður því ég hef lent sjálfur í þessu margoft. Þetta er eitthvað sem fótboltamaður vill ekki upplifa að þurfa að fara svona snemma af velli,“ sagði Jóhann.

„Auðvitað hefðum við vilja hafa hann hérna í vörninni með okkur en við verðum bara að takast á við það. Hann er ekki með okkur og það kemur maður í manns stað eins og við vitum,“ sagði Jóhann.

„Einhver annar fær sjensinn og vonandi grípur hann sjensinn og spilar flottan leik á morgun,“ sagði Jóhann.

Það má horfa á allan blaðamannafundinn hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×