Fótbolti

Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki lög­legt“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stefán Teitur tekur innkast í leiknum í gær.
Stefán Teitur tekur innkast í leiknum í gær. Vísir/Getty

Ótrúlegt atvik átti sér stað í landsleik Íslands og Svartfjallalands í gær. Stefán Teitur Þórðarson féll þá til jarðar á miðjum vellinum eftir baráttu við leikmann Svartfjallalands sem beitti óþokkabragði í átökunum.

Ísland vann 2-0 sigur á Svartfjallalandi í Þjóðadeild UEFA í gær. Orri Steinn Óskarsson og Ísak Bergmann Jóhannesson skoruðu mörkin og tryggðu Íslandi um leið úrslitaleik um áframhaldandi veru í B-deild þjóðadeildarinnar.

Í fremur tíðindalitlum fyrri hálfleik í gær átti sér hins vegar stað ótrúlegt atvik. Stefán Teitur Þórðarson var þá í baráttu við leikmenn Svartfellinga á miðjum vellinum. Stefán Teitur féll til jarðar og aukaspyrna var dæmd og virtist Stefán Teitur ansi þjáður.

Á endursýningum sást að Svartfellingurinn Marko Jankovic greip um punginn á Stefáni Teiti.

„Hann útskýrir fyrir þeim þýska [dómaranum] að Jankovic hafi hreinlega gripið um hreðjarnar á honum. Þetta er nú ekki löglegt,“ sagði Guðmundur Benediktsson í lýsingunni á atvikinu og sérfræðingurinn Kjartan Henry Finnbogason virtist finna til með Stefáni Teiti.

Klippa: Punggrip í landsleik Íslands og Svartfjallalands

Í viðtali við mbl.is ræddi Stefán Teitur atvikið.

„Hann greip utan um eist­un á mér, ég fatta ekki al­veg hvað hann var að gera,“ sagði Stefán Teitur og bætti við að hann hefði haldið að atvik sem þetta ætti að þýða spjald.

Atvikið ótrúlega má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×