Keflvíkingar spyrntu sér af botninum Þórarinn Þórarinsson skrifar 10. október 2024 10:16 Lið OGV og Þórs leiða ennþá í GR Verk Deildinni í Rocket League þegar tímabilið er um það bil hálfnað. Fjórða umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og þar bar einna helst til tíðinda að lið Rafíþróttadeildar Keflavíkur, Rafík, keyrði sig upp af botni deildarinnar með öruggum 3-0 sigri á Quick sem situr eftir í neðsta sæti með 0 stig.
Önnur úrslit umferðarinnar höfðu lítil áhrif á stöðu liða þar sem OGV og Þór eru enn efst, bæði með 8 stig, en OGV heldur 1. sætinu með einu +/- stigi. Úrslit leikja í 3. umferð: Þór vs Dusty 3-2 354 vs OGV 1-3 Quick vs Rafík 0-3 Rafík var á botninum í síðustu þannig að þessi fyrsti sigur liðsins á tímabilinu er því mikilvægur og gæti gefið Keflvíkingum mikilvæga andlega innspýtingu fyrir það sem framundan er. Snorri og Brimar mættu aftur ferskir til leiks í gærkvöld og lýstu leikjum umferðarinnar og ætla einnig að standa vaktina í 5. umferð í næstu viku, enda búast þeir við skemmtilegum leikjum þar sem allt verður „stál í stál“ í langþráðri langþráðri viðureign toppliða Þórs og OGV. Auk Þórs og OGV mætast lið Dusty og Rafík annars vegar og 354 og Quick hins vegar og þeir félagar bíða spenntir eftir því að sjá uppröðunina í lok umferðarinnar enda tímabilið þá hálfnað og sigursælustu liðin fara með ákveðið forskot inn í seinni helming deildarinnar.
Rafíþróttir Tengdar fréttir Hnífjafnt á toppnum í Rocket League Þriðja umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslit leikja höfðu lítil áhrif á stigatöfluna, fyrir utan það helst að ríkjandi meistarar Þórs og OGV eru nú hnífjöfn á toppnum. 3. október 2024 09:59 Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Daníel með slitna hásin Handbolti Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Draumur að vinna með José Mourinho Fótbolti
Hnífjafnt á toppnum í Rocket League Þriðja umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslit leikja höfðu lítil áhrif á stigatöfluna, fyrir utan það helst að ríkjandi meistarar Þórs og OGV eru nú hnífjöfn á toppnum. 3. október 2024 09:59