Dálítil rigning eða slydda suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2024 07:12 Gera má ráð fyrir hita víða þrjú til sjö stig yfir hádaginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en að smám saman snúist í norðaustanátt. Skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél fyrir norðan og austan.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði dálítil rigning eða slydda á suðvestanverðu landinu síðdegis, jafnvel snjókoma á fjallvegum undir kvöld. Bjart verður með köflum suðaustanlands. Gera má ráð fyrir hita víða nálægt frostmarki nú í morgunsárið, en þrjú til sjö stig yfir hádaginn. „Á morgun verður norðan og norðvestan 8-13 m/s á austanverðu landinu en annars hægari. Dálítil él norðaustanlands og smá væta sums staðar á Suðvesturlandi, en annars lengst af þurrt. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst. Á fimmtudag verður norðaustan 8-15 m/s. Rigning eða snjókoma vestanlands, él norðaustantil en bjart með köflum á Suðausturlandi. Hiti 0 til 4 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðan 3-10 m/s og lítilsháttar él, en bjart að mestu sunnanlands. Hiti 0 til 6 stig sunnan og vestantil en frost 0 til 5 stig norðan og austantil. Á fimmtudag: Norðan 8-13 og víða dálítil snjókoma eða slydda, en þurrt að kalla suðaustanlands. Kólnandi veður. Á föstudag: Norðvestan 5-13, en 13-20 norðaustantil. Dálítil él norðan- og norðaustantil, en annars yfirleitt bjart. Hiti víðast um eða undir frostmarki. Á laugardag: Norðlæg átt og bjart að mestu en skýjað og él norðaustanlands. Áfram svalt í veðri. Á sunnudag: Austlæg átt og slydda eða snjókoma, en úrkomulítið norðantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Víða rigning eða slydda með köflum en snjókoma fyrir norðan og austan. Hiti nálægt frostmarki norðan- og austanlands en 1 til 6 stig sunnan- og vestantil.
Veður Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira