Bíó og sjónvarp

Super Happy Forever hlaut Gullna lundann

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum við hátíðlega athöfn á RIFF í dag.
Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum við hátíðlega athöfn á RIFF í dag.

Super Happy Forever eftir japanska leikstjórann Kohei Igarashi hlaut Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF, við hátíðlega athöfn í dag.

Super Happy Together (Eilíf hamingja) keppti við átta myndir í flokknum Vitranir en þar eru myndir eftir leikstjóra sem eru að gera sína fyrstu eða aðra mynd. Myndin var opnunarmynd í Feneyjum nú fyrr í mánuðinum og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Þá fékk myndin A New Kind of Wilderness frá Noregi eftir Silje Evensmo Jacobsen verðlaun í flokknum Önnur framtíð en þar eru myndir sem fjalla um aðkallandi málefni líðandi stundar. Myndin vann einnig World Cinema Grand Jury Prize á Sundance-hátíðinni fyrr á árinu.

Metaðsókn í ár

Brúðurin eftir Hjördísi Jóhannsdóttur var verðlaunuð sem besta íslenska stuttmyndin í ár, og Nikulás Tumi Hlynsson fékk þar að auki sérstaka viðurkenningu fyrir sína stutmynd, Blái Kallinn. Dómnefnd unga fólksins verðlaunaði sænsku myndina G - 21 Sena frá Gottsunda eftir Loran Batti sem bestu myndina.

Lokamynd hátíðarinnar er The Room Next Door (Herbergið við hliðina) eftir Pedró Almodóvar, með Tildu Swinton og Julianne Moore í aðalhlutverkum, og var hún sýnd fyrir fullum sal gesta. 

Hátíðinni lýkur í tuttugusta og fyrsta sinn annað kvöld í Háskólabíói og gefst gestum kostur á að sjá verðlaunamyndirnar á morgun, sunnudag, síðasta degi hátíðarinnar. Í fréttatilkynningu frá RIFF segir að metaðsókn hafi verið á hátíðina í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.