„Íslendingar eru flott design-fólk sem gerir kröfur um útlit, efni, form og lit og það er mismunandi hvað hver vill og hvað hver þarf. Við hjá Heitirpottar.is mætum þessum þörfum. Við erum eigendur að verksmiðju í Eistlandi og þar eru átta til tíu smiðir í fullri vinnu við sérsmíði sunaklefa fyrir okkur,“ segir Kristján og talar um sprengingu í sölu.

Gott fyrir heilsuna
„Sauna er ekkert nýtt undir sólinni, Finnar, Eistar og Rússar hafa stundað saunaböð í árhundruð og hér á landi hefur selst einn og einn klefi síðustu tuttugu ár en eftir að við fórum að selja saunaklefa í mars á þessu ári hefur orðið algjör sprenging. Saunabransinn er skemmtilegasti bransi sem ég hef verið í, ég hefði aldrei trúað hvað Íslendingar hafa mikla þekkingu á sauna, við höfum auðvitað saunur við nánast hverja sundlaug á Íslandi,“ segir Kristján og bætir við að heilsufarslegur ávinningur af því að stunda sauna getur verið margvíslegur. Sauna er meðal annars talin hafa góð áhrif á blóðrásarkerfið og mýkja vöðva og bandvefi auk þess sem það gerir húðinni gott að svitna.
„Ég segi að það eigi til dæmis að vera saunaklefi við öll öldrunarheimili því ef við eigum erfitt með að stunda hreyfingu fáum við hjartað til að pumpa með því að stunda saunaböð. Hitinn er líka góður fyrir liðina. Ég er nýbúinn að ráða til mín starfsmann, sem er bæði íþróttafræðingur og einkaþjálfari og hann fjallaði um saunur í lokaritgerðinni sinn í skólanum.“

Stýra klefanum gegnum app
Kristján segir að mörgum finnist viðarkynding hafa ákveðinn sjarma en rafmagnskynding sé lang algengust hér á landi og hagstæð.
„Rafmagnsklefarnir eru fljótir að hitna og hægt að stýra hitastiginu betur. Það hefur líka mikla kosti að stýra klefanum með appi í símanum og kveikja til dæmis á honum þegar þú ert á leiðinni heim úr vinnunni. Margir koma sér upp rútínu að fara alltaf á sama tíma á ákveðnum dögum í saunu og forstilla klefann svo hann sé alltaf orðinn heitur á þeim tímum.“

Mæta óskum viðskiptavina
„Fólk mætir einfaldlega til okkar með teikningu eða bara hugmyndir og málsetningarnar og við setjum saman klefa eftir þeirra óskum. Besta fjárfestingin er sá klefi sem þú notar mest og ef hann er hannaður eftir þínu höfði eru meiri líkur á að þú notir hann. Klefarnir geta síðan farið beint á pallinn eða á hellulagða stétt, eða bara á grasið. Við komum með hann klárann á vörubíl með krana á staðinn og hífum hann á sinn stað,“ segir Kristján.



