Orri skoraði tvö eftir að hafa komið inn á en Rúnar Alex með slæm mistök Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. ágúst 2024 19:32 Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum í dag. getty/Ulrik Pedersen Íslenski landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö mörk eftir að hafa komið inn á sem varamaður í 5-1 sigri FC Kaupmannahafnar á Magpies frá Gíbraltar í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Lítil spenna var fyrir leikinn í dag enda vann FCK fyrri leikinn í Gíbraltar, 0-3. Danirnir sýndu samt flotta frammistöðu og röðuðu inn mörkum. Magpies komst reyndar yfir á 17. mínútu þegar Olatunde Bayode skoraði eftir mistök Rúnars Alex Rúnarssonar sem fékk tækifæri í marki FCK í dag. Rúnar Alex ætlaði að sparka frá marki sínu en það tókst ekki betur en svo en að boltinn fór í Bayode og inn. Kevin Diks jafnaði fyrir Danina úr vítaspyrnu fimm mínútum fyrir hálfleik og hinn átján ára Victor Froholdt kom heimamönnum í 2-1 á 54. mínútu. Skömmu síðar kom Orri inn á sem varamaður. Hann var ekki lengi að sér að kveða og skoraði á 61. mínútu. Orri gerði svo annað mark sitt og fimmta mark FCK sex mínútum fyrir leikslok. Skömmu áður skoraði Oliver Hojer, sem er aðeins sautján ára, fjórða markið. FCK vann leikinn, 5-1, og einvígið, 8-1 samanlagt. Í næstu umferð mætir liðið Ostrava frá Tékklandi. Eggert Aorn Guðmundsson kom inn á sem varamaður þegar Elfsborg sigraði Sheriff Tiraspol, 2-0, í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Andri Fannar Baldursson sat allan tímann á varamannabekknum. Elfsborg vann einvígið, 3-0 samanlagt og mætir Rijeka eða Hunedoara í næstu umferð.
Sambandsdeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Sjá meira