Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Bylgjulestin 19. júní 2024 13:41 Agnes Ýr, Kristín Ruth og Bragi Guðmunds áttu stórskemmtilegan dag á Þingvöllum síðasta laugardag þegar Bylgjulestin mætti í 80 ára afmæli lýðveldisins. Myndir/Hulda Margrét. Það var hátíðleg stemming á Þingvöllum þegar Bylgjulestin mætti í 80 ára afmæli lýðveldisins. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við starfsfólk Bylgjunnar eins og aðra gesti og voru allir gluggar Bylgjubílsins opnir upp á gátt.
Bragi Guðmunds og Kristín Ruth stóðu vaktina á laugardag en Kristín mætti á Þingvelli í stórglæsilegum þjóðbúningi og vakti verðskuldaða athygli. Kristín Ruth stóð vaktina á laugardag með Braga Guðmunds en hún mætti á Þingvelli í stórglæsilegum þjóðbúningi sem vakti athygli. Myndir/Hulda Margrét. Agnes Ýr var á vettvangi og afhenti Öskjupoka með glaðningi frá Bylgjunni og samstarfsaðilum auk þess sem hún stjórnaði sandpokakasti þar sem hægt var að næla sér í flotta vinninga. Einar Bárðarson kíkti í heimsókn í Bylgjulestarbílinn. Agnes Ýr var á vettvangi og afhenti Öskjupoka með glaðningi frá Bylgjunni og samstarfsaðilum auk þess sem hún stjórnaði sandpokakasti. Myndir/Hulda Margrét. „Svo kíktu skemmtilegir gestir í Bylgjubílinn eins og venjulega,“ sagði Bragi. „Einar Bárðarson var einn þeirra og sagði okkur frá frábærri „mosakenndri“ tónlistarveislu á glænýju sviði sem búið er að koma upp á Valhallarreitnum og fellur vel að umhverfinu. Trúbadorarnir Arnþór og Bjarki tóku sumarsmellinn „Kyssumst í alla nótt“ og frumfluttu að auki glænýtt lag. Svo slógum við á þráðinn til Bubba Morthens sem var að gera sig kláran fyrir síðustu sýninguna af 9 líf.“ Boðið var upp á skemmtilega leiki á Þingvöllum. Myndir/Hulda Margrét. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður mætti líka í heimsókn og sagði hlustendum frá glæsilegri dagskrá á Þingvöllum þessa þjóðhátíðarhelgi sem samanstóð af lýðveldis- og skógargöngum um söguslóðir, leiksýningum og söng, fornleifaskóla fyrir börnin og heilmiklu fleira. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður mætti líka í heimsókn og sagði hlustendum frá glæsilegri dagskrá á Þingvöllum þessa þjóðhátíðarhelgi. Myndir/Hulda Margrét. „Þetta var frábær dagur á Þingvöllum,“ sagði Bragi að lokum. Um næstu helgi, laugardaginn 22. Júní, verður Bylgjulestin á Jónsmessuhátíðinni á Eyrarbakka. Börnin skemmtu sér vel í fallega veðrinu og sum þeirra breyttust í víkinga. Myndir/Hulda Margrét. Næstu stopp Bylgjulestarinnar: 22. júní - Eyrarbakki 29. júní – Borgarnes 6. júlí – Akureyri 13. júlí – Selfoss 20. júlí – Hljómskálagarðurinn í Reykjavík 27. júlí - Hafnarfjörður
Bylgjan Bylgjulestin Þingvellir Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira