Lífið

Spacey á barmi gjald­þrots

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kevin Spacey var sýknaður i bæði dómstóli í Bretlandi og Bandaríkjunum af ásökunum um kynferðisbrot.
Kevin Spacey var sýknaður i bæði dómstóli í Bretlandi og Bandaríkjunum af ásökunum um kynferðisbrot. Vísir/EPA

Leikarinn Kevin Spacey er á barmi gjaldþrots og hefur selt heimili sitt í Baltimore svo hann geti borgað reikninga. Leikarinn galopnaði sig í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan sem sýnt var í kvöld á Talk TV. 

Þar ræddi hann ásakanir gegn sér um kynferðislega áreitni og hvernig líf hans hefur breyst frá því að fyrstu ásakanir komu fram árið 2017. Viðtalið er um 90 mínútur.

Fram kemur í erlendum miðlum að þegar Morgan spurði um núverandi heimili Spacey hafi hann komist í uppnám og greint frá því að heimili hans í Baltimore hafi verið selt á uppboði.

@dailymail Kevin Spacey BROKE DOWN in an interview with Piers Morgan as he revealed he’s lost his home and has ‘no’ money. 🎥 YouTube / Piers Morgan Uncensored #kevinspacey #news #houseofcards #celebritynews #interview #breakdown ♬ i was only temporary - my head is empty

„Ég verð því að fara aftur til Baltimore og setja eignir mínar í geymslu. Svo svarið við þessari spurningu er að ég er ekki alveg viss um það hvar ég ætla að eiga heima.“

Hann sagðist hafa búið í Baltimore allt frá því að tökur á þáttunum House of Cards hófust þar árið 2012 og í þessu sama húsi síðustu átta árin.

Skuldar mikinn lögfræðikostnað

Spurður hvort hann væri á barmi gjaldþrots svaraði Spacey því að hann hefði nokkrum sinnum verið nálægt því að lýsa sig gjaldþrota en hefði náð að komast hjá því naumlega. Hann ætti lítinn pening í dag og skuldaði enn mikið í lögfræðikostnað. Samanlagt skuldi hann enn einhverjar milljónir.

Morgan spurði hann að lokum hver hans næstu skref yrðu og sagðist Spacey þá ætla sér „aftur upp á hestinn“.


Tengdar fréttir

Stjörnurnar vilja Spacey úr sjö ára útlegð

Hollywood stjörnur vilja að leikarinn Kevin Spacey fái að snúa aftur í bransann og leika að nýju eftir sjö ára útlegð, eins og því er lýst. Leikarinn hefur ekki leikið síðan árið 2017 þegar ungir menn í Bretlandi og í Bandaríkjunum stigu fram og hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þeim á barnsaldri en síðar sýknaður.

Kevin Spacey létt eftir sýknudóm

Hollywood leikarinn Kevin Spacey var í dag sýknaður fyrir dómi í Lundúnum af öllum ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum karlmönnum.

Spacey grét er hann var sýknaður

Breskir kviðdómendur hafa sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af tólf ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum breskum mönnum. Það var gert í dag eftir þriggja vikna réttarhöld í Lundúnum.

„Ég er mikill daðrari“

Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.