Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. maí 2024 11:52 Chey Tae-won þarf að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni milljarð Bandaríkjadala. epa/Yonhap Suðurkóreskur auðjöfur hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði 137 milljarða króna, í kjölfar skilnaðar þeirra.
Chey Tae-won og Roh So-young skildu fyrir meira en áratug, eftir að upp komst að Chey hefði feðrað barn með annarri konu. Málið hefur hins vegar þvælst í dómskerfinu en fjölskyldudómstóll hafnaði því að Roh ætti rétt á hlut í fyrirtæki eiginmannsins, SK Group, og annar dómstóll dæmt henni lægri upphæð. Yfirréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Roh ætti sannarlega tilkall til hluta þeirra eigna sem hefðu orðið til á meðan 35 ára hjónabandi hennar og Chey stóð. Hún hefði bæði átt beinan þátt í því að auka virði fyrirtækisins og þá hefði það notið fjölskyldutengsla hennar en faðir hennar er Roh Tae-woo, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu. Dómurinn sagði einnig í niðurstöðu sinni að Chey hefði ekki sýnt neina iðrun vegna óviðurkvæðilegrar hegðunar sinnar né neina virðingu fyrir hjónabandinu. Upphæðin tæki meðal annars tillit til þeirrar þjáningar sem Roh hefði upplifað vegna framhjáhaldsins. Lögmenn Chey segjast munu áfrýja niðurstöðunni en þess má geta að virði hlutabréfa SK Group jókst um níu prósent þegar hún lá fyrir. BBC greindi frá.
Suður-Kórea Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira