Hreinasta martröð hjá þeirri bestu í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2024 08:30 Nelly Korda átti erfiðan fyrsta dag á opna bandaríska meistaramótinu og er í 137. sæti á tíu höggum yfir pari. AP/Matt Rourke Nelly Korda klúraði nánast möguleikanum á því að vinna opna bandaríska meistaramótið í golfi á einni hræðilegri holu.
Það sem meira er að þetta var par þrjú hola sem reyndist hinni 25 ára gömlu Korda algjör martröð. Korda vann fyrsta risamót ársins, Chevron Championship, og hefur líka unnið PGA-mótið einu sinni. Hún hefur aftur á móti aldrei unnið opna bandaríska og endaði bara í 64. sætinu í fyrra. Korda hafði unnið sex af síðustu sjö mótum sínum og var talin vera langsigurstranglegust á mótinu. Nelly Korda just made a 10 on a par 3 at the U.S. OpenI’m sure it wasn’t pleasant for her.But an important reminder that even the best player in the world can struggle mightily and have blowup holes.No one is safe.This is a really hard game at times and we need to be OK… pic.twitter.com/CFUReXOKrD— Jon Sherman (@practicalgolf) May 30, 2024 Fyrsta hringnum lauk í gær og hann spilaði Korda á tíu höggum yfir pari. Það var tólfta holan sem eyðilagði allt saman en Korda hreinlega brann yfir á þessari holu. Korda lék holuna á tíu höggum eða sjö höggum yfir pari. Hún sló boltann meðal annars þrisvar sinnum í vatnið. 🚨😲🏌🏼♀️#WATCH Video has surfaced of the 10 Nelly Korda recorded on the par-3 12th hole @NellyLegion pic.twitter.com/kOuNT7ik4Z— NUCLR GOLF (@NUCLRGOLF) May 30, 2024 „Það er ljóst að fara par þrjú holu á tíu höggum er ekki mikið að hjálpa þér á opna bandaríska mótinu. Þetta var bara slæmur dagur á skrifstofunni. Ég er bara manneskja og það eiga allir slæma daga,“ sagði Korda. Hún er í 137. sæti og alls tólf höggum á eftir hinni japönsku Yuka Saso sem er í forystusætinu eftir fyrsta keppnisdaginn. „Ég gat eiginlega ekki gert neitt við þessu. Átti bara slæmar vippur aftur og aftur,“ sagði Korda. "Just a bad day in the office."Nelly Korda addressed her round after shooting an 80 to begin her 2024 U.S. Women's Open. pic.twitter.com/rpryM7gP8r— Golf Digest (@GolfDigest) May 30, 2024
Golf Mest lesið Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Enski boltinn Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Golf Úlfarnir ráku Pereira Enski boltinn Verður besta sjöþrautakona Íslands villiköttur eða bolabítur? Sport Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Enski boltinn Leggur til breytingar og vill að fótboltinn læri af handboltanum Fótbolti Hólmbert skoraði í Suður-Kóreu og stjórnaði sigursöngvum eftir leik Fótbolti Er Tóti Túrbó ofmetinn? Körfubolti Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Fótbolti Fleiri fréttir Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira