Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Ölgerðin 27. maí 2024 13:12 Gyða Dröfn vörumerkjastjóri mist hjá Ölgerðinni. Nýlega kom á markað kolsýrður próteindrykkur frá íslenska vörumerkinu mist og ber nafnið mist Uppbygging. Drykkurinn hefur slegið rækilega í gegn og ljóst að eftirspurn eftir próteindrykkjum er mikil hérlendis. „
Það sem mér finnst svo frábært við þennan drykk er að þetta er afskaplega auðveld leið til að bæta auka próteini inn í daginn," segir Gyða Dröfn vörumerkjastjóri mist. Mist Uppbygging er hönnuð með það í huga að bæta próteininntöku og hentar frábærlega sem próteingjafi samhliða hefðbundnu fæði. Fyrr á árinu kom varan á markað með skógarberja og chai bragði. Vegna mikillar eftirspurnar bætum við nú við öðru bragði en það er indónesískt lime.” Aðspurð segir Gyða að mikilvægur þáttur í velgengni þessa nýja drykkjar sé aukin vitund um mikilvægi prótein inntöku, en drykkurinn inniheldur 15 gr, af próteini í einni dós. „Svo er hann líka einstaklega bragðgóður og ferskur og inniheldur mátulegt magn af koffíni og b-vítamínum sem stuðla að jafnara orkustigi.” Varð strax einn af þeim stærstu Mist Uppbygging með skógarberjum og chai kom á markað í mars og náði þeim frábæra árangri á sínum fyrsta mánuði að verða einn af þremur stærstu próteindrykkjum á íslenskum markaði, en í flokknum eru á annan tug drykkja. „Mist Uppbygging er einn af fáum próteindrykkjum á markaðnum sem eru kolsýrðir,” segir Gyða og bætir við: Próteinið sem við notum í mist er vatnsrofið kollagenprótein sem inniheldur 18 amínósýrur og þar af eru 8 lífsnauðsynlegar. Rannsóknir hafa sýnt að upptaka líkamans á vatnsrofnu kollagenpróteini sé einstaklega hröð svo þetta er góður kostur í bland við aðra próteingjafa.” Fjölbreyttir drykkir sem fagna eins árs afmæli um þessar mundir „Það er rétt um ár frá því að við sendum frá okkur fyrstu mistina og óhætt að segja að viðbrögðin hafi farið fram úr væntingum alveg frá upphafi. Fyrsta útgáfan teflir fram ólíkum innihaldsefnum með þann tilgang að jafna orkuflæði. Hún inniheldur koffín en þó í hóflegra magni en í hefðbundnum orkudrykkjum sem dæmi en auk þess inniheldur þessi upphaflega útgáfa ræturnar maca og ashwaghanda ásamt yerba mate og b-vítamínum. Það var alltaf hugmyndin með mist vörumerkið að skapa vörulínu sem bíður upp á ólíka virkni eftir tegundum. Það er vaxandi eftirspurn eftir virknivörum um allan heim, hvort sem um ræðir fæðubótaefni eða drykki eins og mist.
Heilsa Drykkir Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira